Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfubolta, greindi frá á Facebook í kvöld að hann ætli að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ og fara í slag við Willum Þór Þórsson og Olgu Bjarnadóttur sem höfðu áður tilkynnt sitt framboð.
Yfirlýsing Brynjars var frumleg og í henni koma m.a. Tom Cruise, Will Ferrell og Kim Jong-un fram. Einnig skrifar hann um að lækka áfengisaldurinn niður í 16 ár og að opna spilavíti.
Blaðamaður mbl.is var því ekki viss hvort Brynjari væri alvara um framboð sitt en honum er það svo sannarlega.
„Að gera grín er góð leið til að koma skilaboðum áfram,“ sagði Brynjar við mbl.is í kvöld. „Þessi íþróttastemning og sérstaklega þessi ÍSÍ-stemning er mjög þurr. Það þarf ekki mikið til að hrista aðeins upp í þessu,“ bætti hann við.
Í yfirlýsingunni skrifar Brynjar einnig um gott samband sitt við ÍSÍ og KKÍ í gegnum tíðina en í þeim orðum má skynja kaldhæðni, þar sem hann hefur átt í deilum við bæði sambönd.
„Ég er í samstarfi við KKÍ meira og minna alla daga. Þótt það sé formaður sem verður móðgaður því litlar stelpur standa í hárinu á honum í fullum rétti. Hann fór í skítapólitík á sínum tíma. Það eru alls konar átök inni í körfuboltafjölskyldunni,“ sagði hann.
Brynjari líst vel á að Willum Þór sé að bjóða sig fram.
„Mér líst rosalega vel á Willum. Ég hef verið að tala við menn sem hann hefur verið að þjálfa og það virðist vera pungur í honum. Ég held aftur á móti að pólitíkin hafi spillt fyrir íþróttaandanum. Ég mun sennilega fá fund með honum, ef hann þorir því.
Það er mikið af fólki í íþróttahreyfingunni sem vill ekki bendla sig við mig, því ég er umdeildasti þjálfari landsins. Við getum kannski hist einhvers staðar þar sem enginn sér. Þá hefði ég gaman af því að heyra hvað hann ætlar að gera,“ sagði hann um Willum Þór.
Brynjar hélt svo áfram og talið barst að Olgu, sem hann er ekki sáttur við, þar sem hún hefur verið í stjórn ÍSÍ.
„Ég hef ekki slæma reynslu af henni en hún er partur af stjórn ÍSÍ í dag, stjórn sem hefur komið einstaklega illa fram við stelpurnar sem ég er að þjálfa í dag.
Ég á eftir að ræða margt við fólk sem hefur komið illa fram við íþróttastelpurnar mínar. Hún má skammast sín fyrir að taka þátt í alls konar einelti sem bitnar mest á stelpunum og krökkunum uppi í Efra-Breiðholti. Við þurfum að taka út ruslið í ÍSÍ.“
Brynjar veit best sjálfur að hann er umdeildur fyrir skoðanir og þjálfaraaðferðir sínar. Hefur hann m.a. verið sakaður um að beita leikmenn sína andlegu ofbeldi, sem leikmennirnir sjálfir hafa vísað á bug. Hann sakar andstæðinga sína um fordóma gagnvart sér.
„Ég er maður heilinda. Þegar fólk kynnist mér í raun og veru og sér verk mín þá hrífast allir með. Mínir andstæðingar eiga það allir sameiginlegt að vera fávísir og fordómafullir. Þeir þurfa að skoða ávextina,“ sagði Brynjar.
Hér fyrir neðan má sjá skrautlega yfirlýsingu Brynjars.