Miami Heat og Memphis Grizzlies urðu í nótt tvö síðustu liðin til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik með því að vinna úrslitaleiki umspilsins.
Memphis vann Dallas Mavericks, 120:106, í úrslitaleik umspils Vesturdeildarinnar og mætir meisturum deildarinnar, Oklahoma City Thunder, í fyrstu umferðinni.
Anthony Davis skoraði þar 40 stig fyrir Dallas en það dugði ekki til. Ja Morant skoraði 22 stig fyrir Memphis.
Miami vann Atlanta á útivelli, 123:114, eftir framlengdan úrslitaleik umspils Austurdeildarinnar og mætir meisturum deildarinnar, Cleveland Cavaliers, í fyrstu umferðinni.
Tyler Herro skoraði 30 stig fyrir Miami og Trae Young 29 stig fyrir Atlanta.