Niðurlægðu mótherja sína í fyrsta leik

Jalen Williams fór mikinn fyrir Oklahoma.
Jalen Williams fór mikinn fyrir Oklahoma. AFP/William Purnell

Topplið Oklahoma City Thunder fór afskaplega illa með Memphis Grizzlies, 131:80, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Vesturdeildar NBA-deildar karla í körfubolta í Oklahoma í dag. 

Oklahoma var 32 stigum yfir í hálfleik, 68:36, og jók aðeins forskot sitt í þeim seinni. 

Stigin dreifust ágætlega í liði Oklahoma og mínúturnar líka vegna úrslitanna en Chet Holmgren skoraði 19 stig, tók tíu fráköst og gaf tvær stoðsendingar í liði Oklahoma. Jalen Williams skoraði þá 20 stig.  Hjá Memphis skoraði Ja Morant 17 stig. 

Næsti leikur liðanna fer aftur fram í Oklahoma næsta þriðjudagskvöld en fjóra sigra þarf til að komast áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert