Stórleikur dugði ekki gegn meisturunum

Paolo Banchero keyrir að vörn Boston.
Paolo Banchero keyrir að vörn Boston. AFP/Maddie Meyer

Meistarar Boston Celtics unnu Orlando Magic, 103:86, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Austurdeildar bandarísku NBA-deildar karla í körfubolta í kvöld. 

Boston er þar með komið í 1:0 en fjóra sigra þarf til að komast í undanúrslitin. Næsti leikur liðanna fer fram næsta miðvikudagskvöld. 

Þrátt fyrir tap átti Paolo Banchero frábæran leik í liði Orlando en hann skoraði 36 stig, tók ellefu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. 

Hjá Boston var Derrick White bestur með 30 stig, fjögur fráköst og tvær stoðsendingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert