Stjarnan og Grindavík áttust við á heimavelli Stjörnunnar í fyrsta leik sínum í undanúrslitaeinvígi Íslandsmóts karla í körfubolta í kvöld og lauk leiknum með 108:100 sigri Stjörnunnar sem er 1:0 yfir í einvíginu. Þrjá leiki þarf til að komast í úrslitaeinvígið gegn annaðhvort Tindastóli eða Álftanesi.
Grindvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust 8:0 yfir og 11:2. Stjörnumenn voru þó ekki langt undan og tókst að jafna leikinn í 13:13. Þriggja stiga karfa Hilmars Smára Henningssonar kom síðan Stjörnunni yfir í fyrsta sinn í leiknum í stöðunni 23:21. Hilmar kom Stjörnunni aftur yfir í stöðunni 26:24. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 26:25 fyrir Stjörnuna.
Annar leikhluti var hnífjafn og skiptust liðin á að komast yfir. Mestur var munurinn 5 stig þegar Grindavík var 37:32 yfir. Stjarnan náði yfirhöndinni undir lok annars leikhluta og var staðan 45:44 fyrir Stjörnuna þegar 20 sekúndur voru eftir og Grindavík í sókn. Grindvíkingar reyndu þriggja stiga skot sem klikkaði en Stjarnan náði frákastinu, komst upp í sókn og skoruðu tveggja stiga körfu áður en fyrri hálfleik lauk. Staðan í hálfleik 47:44 fyrir Stjörnuna.
Grindavík byrjaði seinni hálfleikinn sterkt og setti Daniel Mortensen fyrstu 5 stig leikhlutans og kom Grindavík yfir 49:47. Stjarnan jafnaði síðan leikinn og fór hægt og rólega að síga fram úr Grindvíkingum.
Þegar rúmlega 5 mínútur voru búnar af þriðja leikhluta var staðan 60:53 fyrir Stjörnunni. Stjarnan náði mest 11 stiga forskoti í stöðunni 75:64 en Grindvíkingum tókst að laga stöðuna fyrir lok leikhlutans. Staðan eftir þriðja leikhluta var 75:67 fyrir Stjörnuna.
Stjarnan byrjaði fjórða leikhlutann á tveimur þriggja stiga körfum. Var það lýsandi fyrir leikhlutann því Stjarnan byggði upp gott forskot snemma í leikhlutanum. Ólafur Ólafsson skoraði fjórar þriggja stiga körfur fyrir Grindavík og náði að minnka muninn í 2 stig í stöðunni 85:83 en þá kom áhlaup frá Stjörnumönnum sem gerði út um leikinn.
Þeir Hilmar Smári Henningsson og Ægir Þór Steinarsson voru frábærir og settu hvern þristinn á fætur öðrum. Þegar rétt rúm mínúta var eftir af leiknum var staðan 106:95 fyrir Stjörnuna og ekkert annað í spilunum nema sigur fyrir Stjörnuna sem varð síðan raunin.
Ægir Þór Steinarsson skoraði 29 stig fyrir Stjörnuna og tók Shaquille Rombley 11 fráköst.
Daniel Mortensen skoraði 27 stig fyrir Grindavík og tók Deandre Donte Kane 12 fráköst.
Gangur leiksins:: 2:8, 10:13, 15:20, 26:25, 28:30, 32:37, 42:44, 47:44, 49:49, 60:53, 68:59, 75:67, 85:80, 92:83, 101:90, 108:100.
Stjarnan: Ægir Þór Steinarsson 29/4 fráköst/13 stoðsendingar, Hilmar Smári Henningsson 27/4 fráköst, Jase Febres 17/7 fráköst, Shaquille Rombley 14/12 fráköst, Orri Gunnarsson 12/6 fráköst, Bjarni Guðmann Jónson 4/4 fráköst, Júlíus Orri Ágústsson 3, Hlynur Elías Bæringsson 2.
Fráköst: 35 í vörn, 7 í sókn.
Grindavík: Daniel Mortensen 27/5 fráköst, Ólafur Ólafsson 26/7 fráköst, Deandre Donte Kane 14/12 fráköst/6 stoðsendingar, Jeremy Raymon Pargo 12/7 fráköst/7 stoðsendingar, Lagio Grantsaan 9, Arnór Tristan Helgason 5, Valur Orri Valsson 4, Kristófer Breki Gylfason 3.
Fráköst: 29 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Davíð Kristján Hreiðarsson.
Áhorfendur: 1200