Tindastóll er kominn í 1:0 í einvígi sínu við Álftanes eftir 100:78-sigur í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik á Sauðárkróki í dag.
Deildarmeistarar Tindastóls spiluðu eftir langa hvíld en þeir unnu Keflvíkinga, 3:0, í einvígi liðanna. Álftanes var búið með aðeins minni hvíld en liðið sló út Njarðvík, 3:1.
Næsti leikur liðanna fer fram á Álftanesi næsta fimmtudagskvöld en þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.
Hundrað stig voru skoruð í fjörugum fyrri hálfleik. Eftir nokkuð jafna byrjun fóru Tindastólsmenn að ná forystu þegar leið á fyrsta leikhluta og luku honum átta stigum yfir, 20:12.
Tindastólsmenn fóru hins vegar á kostum í öðrum leikhluta og skoruðu 40 stig. Sigtryggur Arnar Björnsson var þar fremstur í flokki og skoraði fimm þrista. Álftnesingar skoruðu sjálfir þó 28 stig en áttu erfitt með að stöðva heimamenn. Munurinn var því 20 stig í hálfleik, 60:40.
Tindastóll skoraði fyrstu níu stig seinni hálfleiksins, kom muninum upp í 29 stig, og eftir það var ekki aftur snúið.
Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 21 stig, tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar í liði Tindastóls. Þá skoraði Dedrick Basile 19 stig, tók fjögur fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Hjá Álftanesi skoraði Dimitrios Klonaras 18 stig, tók sjö fráköst og gaf eina stoðsendingu.
David Okeke, lykilmaður hjá Álftanesi, var ekki með í dag og ekki vitað hvort hann verði með í næsta leik.