Körfuknattleiksmaðurinn Hansel Enmanuel ætlar að gefa kost á sér í nýliðavalið í NBA-deildinni í körfubolta.
Er það oftast ekki frásögur færandi að leikmaður í bandaríska háskólaboltanum gerir slíkt en Enmanuel freistar þess að verða fyrsti einhenti leikmaður NBA-deildarinnar.
Enmanuel missti vinstri höndina í slysi þegar hann var aðeins sex ára gamall í heimalandinu Dóminíska lýðveldinu.
Þrátt fyrir það gafst leikmaðurinn ekki upp og fékk styrk í bandaríska háskólaboltanum með Peay State-háskólanum í Tennessee. Leikmaðurinn ætlar sér að ná enn lengra og fara í NBA.
Hann yrði ekki fyrsti einhenti leikmaðurinn til að spila í gríðarlega sterkri deild í Bandaríkjunum því Shaquem Griffin lék í alls fjögur tímabil með Seattle Seahawks og Miami Dolphins í NFL-deildinni í ruðningi.