Alvöru helvítis barátta

Baldur Þór Ragnarsson og Sigmundur Már Herbertsson dómari í leiknum …
Baldur Þór Ragnarsson og Sigmundur Már Herbertsson dómari í leiknum í kvöld. mbl.is/Eyþór Árnason

Baldur Þór Ragnarsson þjálfari Stjörnunnar var gríðarlega ánægður með dramatískan sigur á Grindavík í kvöld. Stjarnan er núna einum sigri frá því að tryggja sér sæti í úrslitaeinvígi gegn annaðhvort Tindastóli eða Álftanesi. Baldur hafði þetta að segja um leikinn þegar mbl.is ræddi við hann strax eftir leik:

„Ég er hrikalega ánægður að hafa náð að vinna því að þetta var algjört stál í stál. Grindvíkingar leiddu meirihlutann af leiknum. Þetta var gríðarlega erfitt og erfitt að stoppa þá, sérstaklega Pargo og Kane.

Þeir tveir voru komnir í eitthvað óstöðvanlegt flæði og þvílíkt erfitt að snúa þessu við. Það var bara þvílíkur karakter hjá strákunum að snúa þessu við og klára leikinn bæði varnar- og sóknarlega þarna í endann.“

Grindvíkingar ná þrisvar sinnum í leiknum góðu forskoti en Stjarnan vinnur niður forskot þeirra á örskotsstundu. Þetta gerðist líka í fyrsta leiknum milli liðanna. Hvaða element fer í gang hjá þínu liði þegar þeir fara í þennan ham? 

„Þetta eru bara gæði í þessum drengjum og þeir eru fagmenn fram í fingurgóma. Þeir lifa fyrir körfubolta og þegar þú ert það þá getur þetta gerst. Það er jú það sem er skemmtilegt við þennan leik sem körfuboltinn er.

Þeir eru líka bara svo fókusaðir á að fara í næsta spil. Þeir eru aldrei að fara stoppa þó að á móti blási og er það ekki bara svolítið íslenska eðlið? Við erum líklega bara leiddir áfram af því. Það mun aldrei koma upp það hugarfar að við bara leggjumst niður í einhverjum leik og gefumst upp.“

Í fjórða leikhluta fara dómararnir á skjáinn og dæma stig fyrir Grindavík þar sem þinn leikmaður blokkaði skot í spjaldið. Á sama tíma missið þið af villu. Þetta gerist á mjög viðkvæmum tímapunkti og hefðu mögulega einhver lið litið á þetta sem of mikinn mótvind. Hvað sagðir þú við strákana á þessum tímapunkti?

„Ég sagði þeim bara að hugsa um næsta spil hjá okkur og finna leiðir í gegnum vörnina hjá þeim. Síðan var maður líka bara á sama tíma að reyna finna eitthvað út úr þessu flæði milli Pargo og Kane sem var svolítið að slátra okkur á þessum tímapunkti. Þetta var bara allt frábært.“

Þið getið klárað einvígið í Garðabænum á mánudag. Að þessu sögðu þá eruð þið líka að fara mæta mjög særðu dýri sem mun líklega bíta vel frá sér. Hvernig sérðu næsta leik fyrir þér?

„Þetta lið er hörkulið. Þetta er bara alvöru helvítis barátta. Ef þú heldur að þú sért búinn að klára þetta þá tapar þú. Það er bara þannig. Þetta er bara einn leikur í einu og næsti leikur er bara á mánudag.“

Eitthvað sem þú hefðir viljað sjá Stjörnuna gera betur í kvöld?

„Við erum að fá á okkur 100 stig í leiknum og þá horfir maður alltaf á varnarleikinn en nú þarf bara að skoða allt og betrumbæta,“ sagði Baldur í samtali við mbl.is.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert