Stoltur að kveikja í samfélaginu gagnvart körfubolta

Hörður Axel með boltann í leiknum í kvöld.
Hörður Axel með boltann í leiknum í kvöld. mbl.is/Karítas

Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Álftaness, var að vonum sáttur eftir sigur á Tindastóli í öðrum leik undanúrslita Íslandsmóts karla í körfubolta í kvöld. Með sigrinum jafnaði Álftanes metin í einvíginu í 1:1.

„Þetta var bara gaman. Það var rosaleg stemning, það er kviknað á einhverju hérna á Álftanesi sem er rosalega gaman að vera partur af. Að kveikja í samfélagi gagnvart körfubolta er eitthvað sem maður er stoltur af.“

Álftnesingar fjölmenntu heldur betur í höllina í kvöld og studdu frábærlega við bakið á sínu liði. Þá héldu fagnaðarlætin áfram löngu eftir að leikurinn kláraðist.

„Þetta er búið að vera stigvaxandi í nokkur ár hérna. Það er rosalega flott staða á öllu hérna á Álftanesi.“

Það var augljóst hve mikið var undir í leiknum og sást það sérstaklega vel á baráttunni og viljanum í liðunum undir lok leiks. Þar reyndist Álftanes hafa vinninginn í kvöld.

„Það eru alls ekki allir úrslitakeppnisleikir fallegir, langt því frá. Við börðumst allan tímann, það er eitthvað sem við gerðum kannski ekki á Króknum í síðasta leik. Ég var ánægðastur með ákveðnina og hörkuna í okkur í kvöld.“

Undir blálok leiksins fóru mörg víti forgörðum hjá báðum liðum, en þó fleiri hjá Álftanesi. Hörður fór sjálfur ekki á línuna svo hann þurfti að horfa á þetta án þess að geta nokkuð í þessu gert.

„Þetta er bara partur af leiknum. Við náðum að stoppa þá þegar við þurftum. Við fengum menn á vítalínuna sem við treystum og stundum fer boltinn ofan í en stundum ekki. Varnarleikurinn er það sem við höfum treyst á í allan vetur og það var hann sem endaði á að skila þessum sigri.“

Næsti leikur fer fram á Sauðárkróki en það fór ekki vel fyrir Álftnesingum þar í síðasta leik. Hörður hefur þó fulla trú á að annað verði uppi á teningnum í næsta leik.

„Sá leikur er löngu búinn. Það er 1:1 núna og við erum að fara á Krókinn. Það er krefjandi umhverfi en hver leikur hefur sitt líf. Við skiljum kvöldið í kvöld eftir á gólfinu og við skildum líka síðasta leik á Króknum eftir á gólfinu. Við spilum nýjan leik á þriðjudaginn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert