Njarðvíkingurinn með stórleik

Elvar Már Friðriksson lék afar vel.
Elvar Már Friðriksson lék afar vel. mbl.is/Ólafur Árdal

Maroussi vann sannfærandi heimasigur á Aris, 91:68, í neðri hluta grísku úrvalsdeildarinnar í körfubolta á heimavelli í kvöld.

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson átti stórleik fyrir Maroussi, skoraði 21 stig, tók fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar á 27 mínútum.

Þrátt fyrir sigurinn er Maroussi enn í botnsæti deildarinnar, sem er fallsæti. Liðið er þó með jafnmörg stig og liðið fyrir ofan sig og eru þrjár umferðir enn eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert