„Þetta var alveg dásamlegt og virkilega sætt að vinna loksins fyrsta titilinn á ferlinum,“ sagði Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfuknattleik, þegar Morgunblaðið ræddi við hann um úrslitaeinvígi Bilbao frá Spáni gegn PAOK frá Grikklandi um Evrópubikar FIBA.
Tryggvi og félagar í Bilbao unnu stærsta afrek spænska félagsins til þessa þegar það varð Evrópubikarmeistari með því að sigra PAOK samtals með fimm stiga mun. PAOK vann seinni leikinn í Saloniki á miðvikudagskvöldið, 84:82, en það var nóg fyrir Bilbao sem hafði unnið heimaleikinn 72:65 viku áður.
„Ég vann reyndar 1. deildina með Þór heima á Íslandi en hafði ekki unnið neinn meistaratitil eða bikar. Félagi minn frá Noregi, Harald Frey, var í sömu sporum og sagði við mig fyrir leikinn að það væri gaman að vinna loksins eitthvað. Það var löngu kominn tími á þetta,“ sagði Tryggvi en Frey átti einmitt mjög góðan leik í Saloniki og skoraði dýrmætar körfur.
Um 200 stuðningsmenn Bilbao fylgdu liðinu til Grikklands og stemningin í höllinni var gríðarleg.
„Já, það fór ein flugvél með stuðningsmenn og einhverjir fóru til Grikklands á eigin vegum. Þetta var fjör, ég held að það hafi verið kastað hátt í 100 kílóum af pappír inn á völlinn þegar flautað var af og boltanum kastað upp í loftið. Ég mæli bara með því að kíkja á Youtube-vídeóið af leiknum og sjá stemninguna!“ sagði Tryggvi.
Viðtalið í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag og einnig aðgengilegt í appinu Mogginn.