Hinn efnilegi Almar Orri Atlason hefur ákveðið að skipta um háskóla í Bandaríkjunum og ganga í raðir Miami-háskólans frá Bradley í Illinois.
Almar, sem er tvítugur, er uppalinn hjá KR en hefur undanfarin ár leikið í Bandaríkjunum. Hann hefur verið í stóru hlutverki í yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og verið í æfingahópi A-landsliðsins.
Leikmaðurinn mun leika fyrir Miami RedHawks, skólalið nýja skólans, en það leikur í Mið-Ameríkuhluta háskólaboltans.