Tvöföld tvenna en draumurinn úti

Danielle Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu.
Danielle Rodriguez í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/FÍBA

Íslenska landsliðskonan Danielle Rodríguez átti flottan leik fyrir Fribourg er liðið mátti þola tap, 69:58, á útivelli í fjórða leik sínum við Nyon í undanúrslitum í baráttunni um svissneska meistaratitilinn í dag.

Nyon vann einvígið 3:1 og er komið í úrslit á meðan Danielle og liðsfélagar hennar eru komnar í sumarfrí.

Danielle skoraði 13 stig, tók 14 fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 34 mínútum í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert