Boston Celtics er komið í 3:1 í einvígi sínu við Orlando Magic eftir sigur, 107:98, í átta liða úrslitum Austurdeildar bandarísku NBA-deildar karla í körfubolta í Orlando í nótt.
Fjóra sigra þarf til að komast í undanúrslitin og getur Boston tryggt sig áfram í næsta leik á heimavelli.
Jayson Tatum fór á kostum í liði Boston en hann skoraði 37 stig, tók 14 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hjá Orlando heldur Paolo Banchero áfram að spila vel en hann skoraði 31 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.
Indiana Pacers fór þá auðveldlega með Milwaukee Bucks, 129:103, í Milwaukee í nótt.
Indiana er komið í 3:1 og þarf einnig aðeins einn sigur en næsti leikur liðanna fer fram í Indiana.
Tyrese Haliburton skoraði 17 stig, tók átta fráköst og gaf 15 stoðsendingar í liði Indiana en hjá Milwaukee skoraði Giannis Antetokounmpo 28 stig, tók 15 fráköst og gaf sex stoðsendingar.