Sigrún Björg Ólafsdóttir sem leikur Chattanooga Mocs í bandaríska háskólaboltanum mun spila með Haukum í úrslitaeinvíginu gegn Njarðvík um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta.
Þetta staðfesti Emil Barja þjálfari kvennaliðs Hauka við mbl.is nú í kvöld.
Sigrún Björg er 23 ára og hefur verið í bandaríska háskólaboltanum frá árinu 2020. Hún var valin í varnarlið sinnar deildar á þessu tímabili. Sigrún Björg er öllum hnútum kunnug hjá Haukum en hún ólst upp hjá félaginu áður en hún hélt út í háskólaboltann.
Emil Barja vildi ekki staðfesta hvort Sigrún myndi spila fyrsta leikinn gegn Njarðvík sem fer fram 1. maí í Ólafssal en vildi þó ekki útiloka það. Ljóst er að um gríðarlegan liðsstyrk er að ræða fyrir Hauka í baráttu sinni um Íslandsmeistaratitilinn.