Í Tindastólstreyju á Alþingi

Stefán Vagn Stefánsson í ræðustól í dag.
Stefán Vagn Stefánsson í ræðustól í dag. Skjáskot/Alþingi

Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, vakti athygli fyrir klæðaburð sinn í ræðustól Alþingis á þingfundi í dag.

Stefán Vagn er dyggur stuðningsmaður Tindastóls og lék með liðinu í bæði fótbolta og körfubolta, þar á meðal í næst efstu deild í fótbolta.

Var hann í treyju merktu félaginu þegar Stefán Vagn tók til máls í umræðu um fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna á 32. þingfundi í dag.

Tindastóll á leik fyrir höndum í körfubolta karla í kvöld. Liðið fær Álftanes í heimsókn á Sauðárkrók í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert