Topplið Cleveland Cavaliers fór afskaplega illa með Miami Heat, 138:83, í átta liða úrslitum Austurdeildar NBA-deildar karla í körfubolta í Miami í nótt.
Cleveland er komið áfram eftir að hafa sópað Miami, 4:0, og mætir annaðhvort Indiana Pacers eða Milwaukee Bucks í undanúrslitum.
Nikola Jovic var atkvæðamestur í liði Cleveland með 24 stig, fimm fráköst og tvær stoðsendingar. Hjá Miami var Jarrett Allen atkvæðamestur með 14 stig, 12 fráköst og tvær stoðsendingar.
Cleveland er annað liðið sem sópar mótherjum sínum í átta liða úrslitunum en topplið Vesturdeildarinnar, Oklahoma City Thunder, gerði slíkt hið sama við Memphis Grizzlies.
Jimmy Butler átti þá stórleik í endurkomu sinni í sigri Golden State Warriors á Houston Rockets, 109:106, í San Francisco í nótt.
Golden State er komið í 3:1 og þarf einn sigur til að komast áfram.
Jimmy Butler kom aftur með látum eftir að hafa meiðst í öðrum leik liðanna. Hann skoraði 27 stig, tók fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar.
Hjá Houston skoraði Alperen Sengun 31 stig, tók tíu fráköst og gaf fimm stoðsendingar.