Tindastóll vann lygilegan framlengdan leik

Tindastóll er kominn í 2:1 í einvígi sínu við Álftanes í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir lygilegan sigur, 105:104, í framlengdum spennutrylli í þriðja leik á Sauðárkróki í kvöld.

Tindastóli nægir því einn sigur til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu gegn Stjörnunni eða Grindavík en Álftanes verður að vinna fjórða leikinn á heimavelli á laugardag til þess að knýja fram oddaleik á Sauðárkróki.

Fyrri hálfleikur var hin mesta skemmtun. Mikill skrekkur var að vísu í báðum liðum í upphafi þar sem ekkert gekk í sóknarleiknum.

Fyrsta karfan leit ekki dagsins ljós fyrr en tvær mínútur og 20 sekúndur voru liðnar af fyrsta leikhluta, en þá hófst fjörið.

Jafnræði var með liðunum til að byrja með en þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af leikhlutanum komst Tindastóll sjö stigum yfir, 20:13, og sá var munurinn að honum loknum 28:21.

Giannis Agravanis skorar fyrir Tindastól í leiknum í kvöld.
Giannis Agravanis skorar fyrir Tindastól í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Jóhann Helgi

Sigtryggur Arnar Björnsson, sem eignaðist barn örfáum klukkustundum áður en leikurinn hófst, fór mikinn og skoraði 11 stig í fyrsta leikhluta.

Álftnesingar hófu annan leikhluta af geysilegum krafti og minnkuðu fljótt muninn niður í aðeins tvö stig, 29:27.

Bræðurnir Dimitrios og Giannis Agravanis svöruðu með því að setja niður sína hvora þriggja stiga körfuna fyrir Tindastól og munurinn orðinn átta stig, 35:27.

Stólarnir héldu því forskoti um skeið en eftir að hafa komist í 40:32 kom frábær kafli hjá Álftnesingum sem sneru taflinu við og komust í 42:43.

Það sem eftir lifði af fyrri hálfleik var allt í járnum en tókst Tindastóli að vera þremur stigum yfir, 49:46, í hálfleik eftir að Sadio Doucoure setti niður laglega flautukörfu fyrir heimamenn.

Stólarnir hófu síðari hálfleik af krafti

Stólarnir hófu síðari hálfleikinn af miklum krafti og skoruðu fyrstu sjö stig hans. Munurinn var þá orðinn tíu stig og útlitið orðið gott fyrir heimamenn.

Álftnesingum gekk ekkert að skora úr opnum leik en settu niður vítaskotin sín á meðan Tindastóll byggði upp þægilega forystu. Mest varð hún 13 stig í stöðunni 71:58. Álftanes skoraði síðustu körfu þriðja leikhluta og staðan því 71:60 að honum loknum.

Í fjórða og síðasta leikhluta héldu Stólarnir dampi og hleyptu Álftnesingum ekki nálægt sér. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu og náðu að minnka muninn niður í átta stig í stöðunni 79:71.

Álftnesingar héldu áfram að gera áhlaup og náðu að minnka muninn niður í fimm stig, 82:77, þegar rétt rúmar tvær mínútur lifðu leiks og svo þrjú stig, 82:79, þegar ein og hálf mínúta var eftir.

Sigtryggur Arnar Björnsson brýtur sér leið í gegnum vörn Álftaness …
Sigtryggur Arnar Björnsson brýtur sér leið í gegnum vörn Álftaness í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Jóhann Helgi

Ótrúlegur endasprettur Álftnesinga

Lokamínútan var því æsispennandi eins og við mátti búast. Þegar örskammt var eftir var Tindastóll fimm stigum yfir, 88:83. Þá steig Justin James, sem hafði verið ískaldur í síðari hálfleik og varla hitt úr opnum leik, upp og setti niður þriggja stiga körfu, 88:86.

Dedrick Basile setti þá niður, aðra sóknina í röð, aðeins annað af tveimur vítaskotum sínum og Álftanes gat þá jafnað metin þegar 9,5 sekúndur voru eftir. James gerði sér lítið fyrir og setti niður aðra þriggja stiga körfu sína í röð þegar 2,4 sekúndur voru eftir.

Stólunum tókst ekki að skora úr síðustu sókn sinni og því þurfti að framlengja.

Framlengingin olli ekki vonbrigðum. Þar var spennan í algleymingi sem fyrr.

Stólarnir byrjuðu betur og komust nokkrum sinnum fjórum stigum yfir. Álftanes vildi hafa leikinn spennandi áfram og jafnaði metin í 98:98 þegar rúm mínúta var eftir.

Heimamenn hlutskarpari í framlengingunni

Haukur Helgi Pálsson kom svo Álftanesi yfir, 98:100, í fyrsta sinn síðan í stöðunni 0:3, þegar 28 sekúndur voru eftir.

Nóg átti eftir að gerast þar sem Sigtryggur Arnar svaraði með þristi og Tindastóll skoraði auk þess næstu þrjú stig til viðbótar, staðan þá orðin 104:100. Þegar fimm sekúndur voru eftir minnkaði Dino Stipcic muninn í 104:102 og Davis Geks skoraði svo úr öðru af tveimur vítaskotum sínum.

Staðan orðin 105:102 og örskammt eftir þegar David Okeke fékk tvö vítaskot og þurfti að skora úr því fyrra og klúðra því síðara viljandi. Hann klúðraði hins vegar báðum, skoraði eftir að hafa náð frákastinu en leiktíminn rann út og Stólarnir fóru með ótrúlegan eins stigs sigur af hólmi.

Basile var atkvæðamestur hjá Tindastóli með 25 stig, fimm fráköst og sjö stoðsendingar. Sigtryggur Arnar skoraði 23 stig.

Haukur Helgi var stigahæstur í leiknum með 28 stig fyrir Álftanes auk þess sem hann tók 11 fráköst. Okeke skoraði 22 stig og tók tíu fráköst og James var með 20 stig, sjö fráköst og 11 stoðsendingar.

Tindastóll - Álftanes 105:104

Sauðárkrókur, Bónus deild karla, 29. apríl 2025.

Gangur leiksins:: 0:3, 10:10, 18:13, 26:21, 29:27, 35:30, 42:39, 49:46, 54:46, 61:51, 66:56, 71:60, 75:62, 79:69, 82:75, 89:89, 95:91, 105:104.

Tindastóll: Dedrick Deon Basile 25/5 fráköst/7 stoðsendingar, Sigtryggur Arnar Björnsson 23, Giannis Agravanis 13/8 fráköst/4 varin skot, Davis Geks 12, Sadio Doucoure 12/6 fráköst, Adomas Drungilas 10/10 fráköst, Dimitrios Agravanis 10/4 fráköst.

Fráköst: 28 í vörn, 8 í sókn.

Álftanes: Haukur Helgi Briem Pálsson 28/11 fráköst, David Okeke 22/10 fráköst/3 varin skot, Justin James 20/7 fráköst/11 stoðsendingar, Dimitrios Klonaras 12/6 fráköst, Dúi Þór Jónsson 11, Hörður Axel Vilhjálmsson 9/4 fráköst, Dino Stipcic 2.

Fráköst: 34 í vörn, 6 í sókn.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Jón Þór Eyþórsson.

Áhorfendur: 950

Tindastóll 105:104 Álftanes opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert