Ótrúlegur sigur Tindastóls

Fyrsti leikur í lokaúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik fór fram í stappfullu Síkinu á Sauðárkróki í kvöld.

Tvö bestu lið landsins Tindastóll og Stjarnan áttust þar við. Leikurinn var eins spennandi og leikir geta orðið og endaði hann 93:90 fyrir Tindastól eftir ævintýralegan viðsnúning á lokamínútu leiksins.

Tindastóll hefur þar með tekið forystuna í einvíginu og næsti leikur liðanna verður spilaður í Garðabæ á sunnudagskvöldið kl. 20:15.

Tindastóll setti tóninn í byrjun leiks og skoraði haug af þriggja stiga körfum. Fyrr en varði var staðan 12:3 en Stjarnan hristi fljótlega af sér hrollinn og fór að slá frá sér. Heimamenn voru alltaf einum eða tveimur skrefum á undan og gekk leikur þeirra nokkuð vel. Staðan eftir fyrsta leikhlutann var 26:22 fyrir Tindastól.

Allan annan leikhlutann var Stjarnan að elta. Varnarleikur beggja liða varð ákafari og leikurinn harðari. Töluvert var um mistök og Tindastólsmenn gátu ekki skorað á löngum kafla, þrátt fyrir að fá fín færi undir Stjörnukörfunni. Gestirnir komust loks yfir rétt fyrir hálfleik en Tindastóll átti síðustu körfuna og staðan í hálfleik var 43:42.

Pétur Rúnar Birgisson með boltann en Ægir Þór Steinarsson til …
Pétur Rúnar Birgisson með boltann en Ægir Þór Steinarsson til varnar. Jóhann Helgi Sigmarsson

Í þriðja leikhlutanum skiptust liðin á forustu ansi oft en Stjörnumenn voru meira sannfærandi í sínum leik. Þeir komust í 63:58 og var Hilmar Smári Henningsson allt í öllu á báðum endum vallarins. Stórir póstar í liði Tindastóls virtust ekki klárir í alvöru baráttu og slagsmál og fóru því ekki vel út úr viðskiptum sínum við Stjörnumenn.

Staðan í byrjun lokaleikhlutans var 74:69 fyrir Stjörnuna og voru gestirnir með forskot lengi vel. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Tindastóls, fann engar lausnir. Þrátt fyrir gott framlag frá Sigtryggi Arnari og Dederick Basile þá náðu Tindastólsmenn aðeins að minnka muninn í eitt stig áður en Ægir Þór Steinarsson virtist vera að loka þessu. Hann kom Stjörnunni í 90:85 þegar skammt var eftir.

Það sem svo gerðist fer eflaust í sögubækur Skagfirðinga. Á örskotsstundu settu Tindastólsmenn tvo þrista og komust yfir, 91:90. Í millitíðinni varði Sadio Doucoure skot frá Orra Gunnarssyni og allt í einu voru Tindastólsmenn komnir yfir. Heimamenn náðu síðan loks að loka á Ægi Þór og lokatölur urðu 93:90.

Dimitrios Agravanis og Orri Gunnarsosn í baráttunni í kvöld.
Dimitrios Agravanis og Orri Gunnarsosn í baráttunni í kvöld. Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson

Einna skemmtilegast var að fylgjast með smæstu leikmönnum liðanna. Ægir Þór Steinarsson var óragur við að keyra inn í teig hjá Skagfirðingum og hann skoraði fjölmargar körfur þannig. Risarnir í liði Stólanna réðu ekkert við hann og voru hvergi nálægt því að verja skot frá honum eða trufla hann það mikið að hann klikkaði. Það tókst í lokin þegar Ægir hefði getað komið Stjörnunni í 92:91.

Dederick Basile var einnig öflugur undir körfunni en hann var meira í að taka fráköst og var fallegt að sjá hann kljást við höfðingjann Hlyn Bæringsson í háloftunum. Basile hafði þar oftar en ekki betur. Sá stutti tók svo liðið á herðarnar á lokakaflanum og það var fyrst og fremst hann sem dró Stólana upp úr dýinu sem þeir virtust fastir í.

Gangur leiksins:: 12:3, 17:10, 24:16, 26:22, 31:27, 31:29, 39:37, 43:42, 49:50, 58:59, 61:67, 69:74, 71:77, 76:84, 82:86, 93:90.

Tindastóll: Dedrick Deon Basile 25/9 fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson 19, Sadio Doucoure 13/6 fráköst/5 stoðsendingar, Dimitrios Agravanis 12/6 fráköst, Giannis Agravanis 8/6 fráköst/5 stoðsendingar, Adomas Drungilas 7/4 fráköst, Davis Geks 6, Ragnar Ágústsson 2, Pétur Rúnar Birgisson 1.

Fráköst: 28 í vörn, 7 í sókn.

Stjarnan: Hilmar Smári Henningsson 28/9 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 24/12 fráköst/9 stoðsendingar, Shaquille Rombley 14/4 fráköst, Orri Gunnarsson 12/7 fráköst, Jase Febres 6/5 fráköst, Hlynur Elías Bæringsson 4/5 fráköst, Júlíus Orri Ágústsson 2.

Fráköst: 32 í vörn, 11 í sókn.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Birgir Örn Hjörvarsson.

Áhorfendur: 1500

Tindastóll 93:90 Stjarnan opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert