Hamar knúði í kvöld fram oddaleik í einvíginu við Ármann um sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik með því að vinna fjórða leik liðanna sem fram fór í Hveragerði, 98:92.
Staðan er því 2:2 í einvíginu og hreinn úrslitaleikur framundan í Laugardalshöllinni á mánudagskvöldið.
Hamar var yfir í hálfleik, 50:43, og staðan var orðin 80:63 eftir þriðja leikhluta. Ármenningar söxuðu á forskotið á lokakaflanum og minnkuðu muninn í tvö stig, 91:89, þegar enn voru tæpar tvær mínútur eftir.
Jaeden King skoraði úr tveimur vítaskotum fyrir Hamar þegar 9 sekúndur voru eftir, 96:91, og Ármann ógnaði ekki sigrinum eftir það.
Jose Medina skoraði 35 stig fyrir Hamar, Jaeden King 30 og Fotios Lampropoulos 12.
Jaxson Baker skoraði 23 stig fyrir Ármann og Adama Darboe 14.
Gangur leiksins:: 6:4, 16:11, 17:18, 24:28, 32:28, 37:34, 40:40, 50:43, 57:44, 66:51, 71:56, 80:63, 86:69, 88:81, 91:84, 98:92.
Hamar: Jose Medina Aldana 35/9 stoðsendingar, Jaeden Edmund King 30/15 fráköst, Fotios Lampropoulos 12/10 fráköst, Ragnar Agust Nathanaelsson 10/5 fráköst, Daníel Sigmar Kristjánsson 4/6 fráköst, Lúkas Aron Stefánsson 3, Björn Ásgeir Ásgeirsson 2, Birkir Máni Daðason 2.
Fráköst: 29 í vörn, 11 í sókn.
Ármann: Jaxson Schuler Baker 23/9 fráköst, Adama Kasper Darboe 21/9 stoðsendingar, Arnaldur Grímsson 14/9 fráköst, Cedrick Taylor Bowen 14/7 fráköst/5 stoðsendingar, Frosti Valgarðsson 12/4 fráköst/6 stoðsendingar, Frank Gerritsen 4, Magnús Dagur Svansson 2, Kári Kaldal 2.
Fráköst: 25 í vörn, 7 í sókn.
Dómarar: Bjarki Þór Davíðsson, Jakob Árni Ísleifsson, Sigurbaldur Frímannsson.
Áhorfendur: 350.