Denver Nuggets er komið í 2:1 í einvígi sínu við topplið Oklahoma City Thunder eftir sigur í framlengingu, 113:104, í þriðja leik liðanna í undanúrslitum bandarísku NBA-deildar karla í körfubolta í Denver í nótt.
Fjóra sigra þarf til að komast í úrslit Vesturdeildarinnar en næsti leikur fer einnig fram í Denver annað kvöld.
Bæði lið fengu tækifæri til að skora sigurkörfuna í stöðunni 102:102 en fyrst klúðraði stjarna Oklahoma Shai Gilgeous-Alexander og næst Nikola Jokic stjarna Denver.
Í framlengingunni skoraði Oklahoma hins vegar bara eina körfu gegn níu stigum Denver sem vann.
Jalen Williams var atkvæðamestur í liði Oklahoma með 32 stig, þrjú fráköst og fimm stoðsendingar. Hjá Denver skoraði Nikola Jokic 20 stig, tók 16 fráköst og gaf sex stoðsendingar.
Topplið Austurdeildarinnar Cleveland Cavaliers minnkaði þá muninn í rimmu sinni gegn Indiana með sannfærandi sigri, 126:104, í nótt. Staðan í einvíginu er nú 2:1 fyrir Indiana.
Indiana stal báðum leikjum í Cleveland en Darius Garland, næstbesti leikmaður Cleveland, sneri aftur í nótt.
Cleveland náði snemma frumkvæðinu og átti Indiana ekki séns eftir það.
Donovan Mitchell fór á kostum í liði Cleveland en hann skoraði 43 stig, tók níu fráköst og gaf fimm stoðsendingar.
Hjá Indiana skoraði T.J. McConnell 12 stig, tók sex fráköst og gaf sjö stoðsendingar.