Elvar og félagar héldu sér uppi

Elvar Már Friðriksson og liðsfélagar hans í Maroussi verða áfram …
Elvar Már Friðriksson og liðsfélagar hans í Maroussi verða áfram í efstu deild Grikklands. Ljósmynd/FIBA

Elvar Már Friðriksson og liðsfélagar hans í Maroussi eru búnir að bjarga sér frá falli í efstu deild gríska körfuboltans eftir útisigur á Lavrio, 95:81, í dag. 

Maroussi er með níu sigra og 18 töp þegar ein umferð er eftir en Lavrio er aðeins með sjö sigra og getur ekki náð Maroussi en aðeins eitt lið fellur niður í B-deildina. 

Elvar Már var að vanda mikilvægur í liði Maroussi en hann skoraði sjö stig og gaf níu stoðsendingar á 33 mínútum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert