Njarðvík knúði fram hreinan oddaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta eftir glæsilegan sigur á Haukum, 94:78, í Innri Njarðvík í kvöld. Liðin leika því hreinan úrslitaleik á þriðjudaginn í Hafnarfirði.
Ljónynjurnar úr Njarðvík mættu dýrvitlausar til leiks í dag og náðu fínu forskoti í byrjun. Brittany Dinkins byrjaði stórkostlega og setti niður tvo þrista í upphafi.
Haukakonur voru þó aldrei langt undan og hleyptu Njarðvík aldrei meira en 9 stigum fram úr sér. Þegar fyrsta leikhluta lauk var staðan 25:20 fyrir Njarðvík.
Haukar voru sterkari í öðrum leikhluta og söxuðu á forskot Njarðvíkur. Hápressuvörn Hauka er illviðráðanleg og fengu Njarðvíkingar að reyna það. Stór skot duttu niður hjá Haukum, meðal annars þristur frá Rósu Björk Pétursdóttur sem fór í spjaldið og ofan í.
Haukar gátu náð forskotinu rétt fyrir hálfleik en það tókst ekki og staðan 42:41 fyrir Njarðvík.
Haukar náðu forystunni í leiknum í byrjun þriðja leikhluta. Njarðvík jafnaði með þriggja stiga körfu frá Brittany Dinkins í stöðunni 45:45. Njarðvík komst síðan yfir í leiknum en Þóra Kristín Jónsdóttir jafnaði fyrir Hauka með þriggja stiga körfu.
Njarðvík náði síðan aftur yfirhöndinni og byggði upp ágætt forskot fyrir fjórða leikhlutann. Staðan eftir þriðja leikhluta var 69:59 fyrir Njarðvík.
Njarðvíkurkonur börðust eins og sannar ljónynjur í fjórða leikhluta. Þær settu niður hvern þristinn á fætur öðrum og byggðu upp 26 stiga forskot í stöðunni 88:62.
Haukar náðu þó að klóra í bakkann með frábærum kafla og minnka forskotið fyrir leikslok.
Liðin leika því hreinan oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn á þriðjudag á heimavelli Hauka.
Brittany Dinkins skoraði 29 stig og gaf 5 stoðsetningar fyrir Njarðvík og tók Emilie Sofie Hesseldal 14 fráköst.
Lore Devos skoraði 26 stig fyrir Hauka og tók 15 fráköst. Þóra Kristín Jónsdóttir gaf 9 stoðsendingar.
Gangur leiksins:: 8:5, 16:12, 23:14, 25:20, 31:24, 35:32, 40:35, 42:41, 45:45, 50:47, 60:57, 69:59, 76:60, 84:62, 88:65, 94:78.
Njarðvík: Brittany Dinkins 29/7 fráköst/5 stoðsendingar, Paulina Hersler 16/14 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 13/4 fráköst, Lára Ösp Ásgeirsdóttir 12, Emilie Sofie Hesseldal 9/14 fráköst/3 varin skot, Eygló Kristín Óskarsdóttir 8, Krista Gló Magnúsdóttir 5, Sara Björk Logadóttir 2.
Fráköst: 34 í vörn, 11 í sókn.
Haukar: Lore Devos 26/15 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 17/4 fráköst/6 stolnir, Þóra Kristín Jónsdóttir 12/4 fráköst/9 stoðsendingar, Diamond Alexis Battles 9/7 fráköst/6 stoðsendingar, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 6, Sigrún Björg Ólafsdóttir 5, Sólrún Inga Gísladóttir 3.
Fráköst: 24 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Jón Þór Eyþórsson.
Áhorfendur: 1000