Styrmir Þrastarson og félagar í Belfius Mons unnu stórsigur á Feyenoord, 96:71, í sameiginlegri efstu deild Hollands og Belgíu í körfubolta í kvöld.
Styrmir var stigahæstur í leiknum en hann skoraði 20 stig, tók fjögur fráköst og gaf sex stoðsendingar.
Belfius Mons er í níunda sæti deildarinnar með 20 sigra og 16 töp.