Gunnar semur að nýju við UFC 

Gunnar Nelson mun snúa aftur í búrið á þessu ári.
Gunnar Nelson mun snúa aftur í búrið á þessu ári.

Bardagakappinn Gunnar Nelson hefur skrifað undir nýjan samning við bardagasamtökin UFC í blönduðum bardagalistum.

Að sögn Haraldar Dean Nelson, föður Gunnars og umboðsmanns, óskaði UFC að fyrra bragði eftir því að gera nýjan samning við Gunnar, sem átti einn bardaga eftir á gamla samningnum sínum.  

„Þetta er fimm bardaga samningur sem tekur gildi strax þannig að síðasti bardagi á gamla samningnum fellur niður og má kannski segja að sé fyrsti bardaginn á nýja samningnum.

Við vissum af áhuga fleiri bardagasamtaka á því að semja við Gunnar og UFC hefur að öllum líkindum vitað af því líka og viljað tryggja samning við Gunnar áfram,“ sagði Haraldur í fréttatilkynningu frá Mjölni. 

Sjálfur segist Gunnar aldrei hafa hugleitt af neinni alvöru að semja við aðra en UFC en þar segir hann margt koma til, ekki síst öflug lyfjapróf innan UFC sem ekki séu til staðar hjá öðrum samtökum.

„UFC eru einfaldlega langstærsta og öflugasta MMA keppnin í heiminum í dag og lyfjaprófin skipta að mínu mati gríðarlega miklu máli,“ sagði Gunnar í tilkynningunni og bætti við: 

„Við vissum af áhuga annarra MMA-samtaka en á meðan lyfjapróf þeirra eru lítil eða engin komu aðrir bara ekki til greina. Ég hef áður sagt að ég muni aldrei taka nein ólögleg lyf og ef það er forsenda fyrir því að vera í fremstu röð þá mun ég hætta.“

Keppti síðast árið 2019

Langt er um liðið síðan Gunnar keppti síðast í UFC og hefur hann síðan þá verið að þjálfa í Mjölni af krafti. Hann keppti síðast í lok september 2019 en þess má geta að tveir síðustu andstæðingar hans eru númer tvö og þrjú á heimslistanum.

„Ég er mjög sáttur við að vera bara faðir og þjálfari ef út í það er farið. Ég hef fundið það á síðustu árum hvernig þjálfun í Mjölni gefur mér alltaf meira og meira og sé framtíð mína svo sannarlega við þjálfun þegar keppnisferli lýkur.

[E]f honum lyki á morgun þá væri það bara allt í lagi. Það er hins vegar ekki stefnan alveg strax og nú er nýr samningur við UFC í höfn og ég er mjög sáttur,“ sagði hann.

Gunnar bindur vonir við að tilkynnt verði um næsta bardaga hans á allra næstunni.

„Ég er nýlega stiginn upp úr Covid og er svona að byrja æfingar aftur. Nú er bara að koma sér í almennilegt keppnisform og vonandi getum við tilkynnt næsta bardaga á næstu dögum eða vikum,“ sagði hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert