87 keppendur á stærsta uppgjafarglímumótinu

Bjarki Þór Pálsson í kröppum dansi á Mjölni Open 15 …
Bjarki Þór Pálsson í kröppum dansi á Mjölni Open 15 á síðasta ári. Ljósmynd/Mjölnir

Stærsta uppgjafarglímumót landsins, Mjölnir Open 16, fer fram á morgun, laugardaginn 9. apríl. 87 keppendur eru skráðir til leiks á mótið í ár.

Mjölnir Open er elsta mót landsins í brasilísku jiu-jitsu enda hefur það verið haldið árlega frá árinu 2006, að undanskildu árinu 2020 þegar kórónuveirufaraldurinn kom í veg fyrir mótahald.

Því er um að ræða einn stærsta viðburð ársins í greininni. Keppt er án galla (nogi) og er hægt að vinna með uppgjafartaki eða á stigum.

87 keppendur frá 6 félögum eru skráðir til leiks í ár og er þetta næstmesti fjöldi keppenda í sögu mótsins. Mótið er því töluvert fjölmennara en síðustu Íslandsmeistaramót í öðrum bardagaíþróttum á Íslandi.

Sterkir keppendur eru skráðir til leiks á mótið á borð við Kristján Helga Hafliðason, Bjarka Þór Pálsson, Önnu Soffíu Víkingsdóttur, Valentin Fels, Ómar Yamak, Halldór Loga Valsson, Ingu Birnu Ársælsdóttur, Magnús Inga Ingvarsson og svo mætti lengi telja. Það má því búast við harðri keppni í sterkum flokkum á laugardaginn.

Keppt er í fimm þyngdarflokkum karla og þremur kvenna auk opinna flokka:

Opinn flokkur karla

+99 kg karla

-99 kg karla

-88 kg karla

-77 kg karla

-66 kg karla

Opinn flokkur kvenna

+70 kg kvenna

– 70 kg kvenna

– 60 kg kvenna

Mótið hefst klukkan 11 í húsakynnum Mjölnis en einnig verður mótinu streymt í gegnum youtubesíðu Mjölnis. Þá verður hægt að fylgjast með gangi mála á Smoothcomp.com á keppnisdegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert