Heitt í kolunum í beinni á BBC - myndskeið

Atvikið var nokkuð skondið.
Atvikið var nokkuð skondið. AFP

Dan Walker, íþróttafréttamaður BBC á Ólympíuleikunum í Ríó, lenti í heldur óheppilegu atviki í beinni útsendingu í gær.

Í miðri frétt varð Walker einfaldlega að takast á við fílinn í herberginu, eða öllu heldur parið á ströndinni.

Walker gerði þó gott úr atvikinu og sló á létta strengi.

„Fyrir þau sem eru að velta því fyrir sér á samfélagsmiðlum hvað sé að gerast í bakgrunninum þá ætlum við ekki að „súma“ inn. En við getum fullvissað ykkur um að það er ekki það. Þetta er bara faðmlag. Þau eru að lesa bók, það virðist vera sem svo að þau séu að lesa bók í furðulegri stellingu,“ sagði Walker.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert