„Ekki lengur Guðmundur heldur Gullmundur“

Guðmundur og félagar fagna í leikslok.
Guðmundur og félagar fagna í leikslok. AFP

„Það er ekki lengur Guðmundur heldur Gullmundur,“ sögðu lýsendur danska ríkisútvarpsins eftir að karlalandslið þeirra í handknattleik undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar hafði tryggt sér gullverðlaun á Ólympíuleikunum í Ríó með sigri á tvöföldum Ólympíumeisturum Frakka.

Frétt mbl.is: Guðmundur fékk Ólympíugull

Guðmundur Guðmundsson hefur verið mikið gagnrýndur fyrir frammistöðu liðsins á þeim tveimur stórmótum sem hann hefur stýrt liðinu, eða til 5. sætis á HM í Katar og til 6. sætis á EM í Póllandi.

Á því verður væntanlega breyting nú enda margir handboltasérfræðingar sem kalla sigur Dana taktískt meistaraverk Guðmundar.

Sjá frétt mbl.is: „Maður fær svolítið flashback“

Sjá frétt mbl.is: Guðmundur fékk loksins hrós

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert