Blindur Írani lék á fjóra og skoraði (myndskeið)

Leikmenn Morokkó verjast í leik gegn heimamönnum á Ólympíumótinu í …
Leikmenn Morokkó verjast í leik gegn heimamönnum á Ólympíumótinu í Ríó. AFP

Íran vann Marokkó 2:0 í fótbolta blindra á ólympíumóti fatlaðra í Ríó um helgina. Seinna markið var einkar laglegt.

Keppt er í fimm manna liðum og gerði Behzad Zadaliasghari sér lítið fyrir og lék á alla fjóra útileikmenn Marokkó áður en hann skoraði neðst í vinstra hornið. Hægt er að sjá myndskeið af markinu hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert