Níu íslenskir keppendur á Ólympíuleikum ungmenna

Ólympíuleikar ungmenna, sem ætlaðir eru íþróttafólki á aldrinum 15 til 18 ára, fara fram í Buenos Aires í Argentínu dagana 6. til 18. október. Keppt verður í 32 íþróttagreinum sem eru bæði hefðbundnar og nýstárlegar og munu í fyrsta skipti á ólympískum viðburði vera jafnmargir karlkyns og kvenkyns keppendur.

Ísland sendir inn níu keppendur að þessu sinni sem hafa ýmist tryggt sér þátttökurétt á úrtökumörkum fyrir leikana, náð tilskildum lágmörkum eða hafa verið tilnefndir af sínum sérsamböndum í boðsæti. Eftirtaldir einstaklingar munu keppa fyrir Íslands hönd í Buenos Aires:

Sund

Brynjólfur Óli Karlsson               50 og 200 metra baksund

Karen Mist Arngeirsdóttir           100 metra bringusund

Snæfríður Sól Jórunnardóttir      50, 100 og 200 metra skriðsund

Golf

Hulda Clara Gestsdóttir               einstaklings- og parakeppni

Ingvar Andri Magnússon              einstaklings- og parakeppni

Frjálsíþróttir

Elísabet Rut Rúnarsdóttir              sleggjukast

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir           200 metra hlaup

Valdimar Hjalti Erlendsson            kringlukast

Fimleikar             

Martin Bjarni Guðmundsson         fjölþraut drengja

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir mun taka þátt í leikunum fyrir hönd Íslands sem ungur áhrifavaldur (Young Changemaker) en um er að ræða verkefni á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar sem felur í sér að halda utan um fjölbreytta fræðslu og afþreyingu fyrir keppendur á leikunum. Ingibjörg Kristín keppti sjálf á Ólympíuleikum ungmenna í Singapore árið 2010 og hefur mikla reynslu af þátttöku í stórmótum í gegnum árin en hún hefur átt langan og farsælan feril sem afreksíþróttakona í sundi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert