Franski handknattleiksmaðurinn Nikola Karabatic jafnaði í morgun metið yfir flesta spilaða leiki á Ólympíuleikum þegar hann lék sinn 35. leik í tapi gegn Noregi.
Tapið kom ekki að sök þar sem Frakkland var þegar búið að tryggja sér sigur í A-riðlinum.
Rússneski markvörðurinn Andrey Lavrov lék á sínum tíma 35 leiki á Ólympíuleikunum, fyrst fyrir Sovétríkin og síðar Rússland, og hafði met hans staðið frá árinu 2004.
Ef ekkert stórvægilegt kemur fyrir Karabatic á næstu dögum ætti hann að slá metið á þriðjudaginn þegar Frakkar mæta lærisveinum Arons Kristjánssonar í Barein í fjórðungsúrslitum leikanna.