Hollenska hlaupakonan Sifan Hassan sló Ólympíumetið í maraþonhlaupi kvenna á leikunum í París í morgun.
Þetta voru þriðju verðlaun hennar á leikunum en hún vann bronsið í bæði 5000 og 10000 metra hlaupum
Hún fór hlaupið á tímanum 2:22,55 en hún og Tigst Assefa frá Eþíópíu, sem vann silfrið á tímanum 2:22,58, voru báðar á undan gamla Ólympíumetinu sem var 2:23,07 sem Tiki Gelana átti.
Í þriðja sæti var Hellen Obiri frá Kenía á tímanum 2:23,10 sem er hennar besti tími í maraþoni.