Daniel Wiffen átti að vera fánaberi Írlands á lokahátíð Ólympíuleikanna en komst ekki vegna veikinda.
Wiffen er 23 ára gamall sundmaður og keppti í 10 km maraþonsundi karla í Signu síðastliðinn föstudag. Hann fór veikur á spítala og missti því af lokaathöfninni.
Hann er Ólympíumeistari í 800 metra sundi og fékk bronsið í 1500 metra sundi áður en hann keppti í maraþonsundinu þar sem hann lenti í 18. sæti á tímanum 1:57,20.