Erlend þátttaka nær tvöfaldast milli ára

Margrét Jóhannsdóttir og Kristófer Darri Finnsson keppa í badminton á …
Margrét Jóhannsdóttir og Kristófer Darri Finnsson keppa í badminton á RIG um næstu helgi. Sportmyndir.is

Íþróttaleikarnir WOW Reykjavik International Games hefjast á fimmtudaginn. Það eru þátttakendur í badminton sem hefja fyrstir keppni en þeir etja kappi í TBR-húsunum við Gnoðarvog.

Til keppni í badminton eru skráðir 172 erlendir þátttakendur en þeir voru 88 í fyrra og því um að ræða næstum tvöföldun í fjölda á milli ára. Einnig koma til landsins 18 erlendir dómarar auk þjálfara og annars fylgdarliðs sem gerir heildarfjölda erlendra gesta í badminton vel yfir 200 manns frá 36 löndum. Landsliðsþjálfarar Íslands völdu 36 íslenska þátttakendur á mótið sem er stærsta landsliðsverkefni Badmintonsambandsins ár hvert.

Í einliðaleik kvenna eru fimm keppendur á topp 100 á heimslistanum. Efst og líklegust til sigurs er Kate Koo Fune frá Mauritius en hún er númer 73 í heiminum. Næst efst er Clara Azurmendi frá Spáni sem er númer 79 á heimslistanum. Eini Íslendingurinn sem kemst beint inn á aðalmótið sem hefst á föstudag er Margrét Jóhannsdóttir en hún komst í undanúrslit á mótinu í fyrra. Hinar íslensku stelpurnar byrja í undankeppni mótsins á fimmtudag þar sem 24 stúlkur keppa um átta laus sæti á aðalmótinu.

Rosario Maddaloni frá Ítalíu er talinn líklegastur til sigurs í einliðaleik karla en hann vermir 65. sætið á heimslista Alþjóðabadmintonsambandsins. Sam Parsson frá Englandi sem er númer 83 á sama lista er einnig talinn líklegur til afreka. Allir íslensku keppendurnir byrja í undankeppninni á fimmtudag en þar keppa 65 leikmenn um 8 laus sæti á aðalmótinu.

Keppendur í tvíliða- og tvenndarleik eru einnig hátt skrifaðir á heimslistanum. Í tvíliðaleik karla koma tvö mjög sterk pör frá Skotlandi, Alexander Dunn og Adam Hall númer 52, og rétt á eftir þeim eða í sæti 63 eru Martin Campbell og Patrick Machugh. Í tvíliðaleik kvenna eru 2 pör á topp 100, skoska parið Julie Macpherson og Eleanor O’Donnell númer 66 í heiminum, og frá Indlandi Kuhoo Garg og Ningshi Block Hazarika sem eru númer 96 á heimslistanum. Hæst skrifaða parið í tvenndarleik eru þau Kristoffer Knudsen og Isabella Nielsen frá Danmörku en þau eru í 90. sæti heimslistans.

Keppni í badminton hefst klukkan 9:00 á fimmtudagsmorgun og stendur til klukkan 17. Á föstudag verður spilað klukkan 9:00-22:30. Á laugardaginn verða áttaliða úrslit leikin klukkan 10:00-13:30 og undanúrslit klukkan 17:00-21:00. Úrslitaleikirnir fara svo fram á sunnudag klukkan 10:00-13:00. Hér má finna niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja.

Badmintonmótið um næstu helgi er hluti af Evrópumótaröðinni og gefur stig á heimslista. Verðlaunafé mótsins er 10.000 dollarar. Einnig verður keppt í badminton seinni helgi leikanna en þá verður keppt í unglingaflokkum og er von á stórum hópi keppenda frá Færeyjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert