Borðtennis í beinni

Ivik Nielsen frá Grænlandi sigraði í einliðaleik karla í borðtennis …
Ivik Nielsen frá Grænlandi sigraði í einliðaleik karla í borðtennis á Reykjavíkurleikunum 2017. Sportmyndir.is

Borðtenniskeppni WOW Reykjavik International Games fer fram í TBR-húsinu við Gnoðarvog. Keppni í einliðaleik karla hófst klukkan 15:00 og einliðaleik kvenna klukkan 16:00. Á meðal keppenda er flest af besta borðtennisfólki landsins ásamt sex erlendum gestum. Sigurvegararnir frá því í fyrra eru einnig á meðal keppenda, Aldís Rún Lárusdóttir úr KR og Ivik Nielsen frá Grænlandi.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 16:30 hér fyrir neðan.


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert