Hlynur Örn sigraði í keilu

Hlynur Örn Ómarsson, keilumeistari Reykjavíkurleikanna 2019.
Hlynur Örn Ómarsson, keilumeistari Reykjavíkurleikanna 2019. Ljósmynd/Kjartan Einarsson

Hlynur Örn Ómarsson úr ÍR sigraði í keilumótinu á Reykjavíkurleikunum sem lauk í kvöld. Hlynur sigraði Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR í úrslitaviðureigninni með aðeins einum pinna, 234 gegn 233, og réðust úrslitin í síðasta kasti Hlyns þegar hann náði 9 keilum og sigraði þar með keppnina með aðeins einum pinna. Í undanúrslitum mættu þeir Svíanum Mattias Möller sem leiddi forkeppnina og Jóni Inga Ragnarssyni úr Keilufélagi Reykjavíkur. Jón Ingi varð í 3. sæti en Möller hafnaði í því 4.

Efst kvenna varð Daria Pajak frá Pólandi en hún datt út í 8 manna úrslitum á móti Mattias Möller. Daria var ein þriggja atvinnukvenna í keilu sem tóku þátt á mótinu í ár. Efst íslenskra kvenna varð Dagný Edda Þórisdóttir úr KFR en hún komst í 16 manna úrslit en datt þar út fyrir Dananum Jesper Agerbo. Agerbo, sem sigraði mótið í fyrra, mætti síðan Hlyni Erni í 8 manna úrslitum. Hlynur og Jesper áttust einnig við í fyrra í 4 manna úrslitum og hafði þá Jesper betur en nú var komið að Hlyni að fara alla leið.

Alls tóku hátt í 100 keppendur þátt á mótinu í ár. Þrír fullkomnir leikir náðust og að auki féllu nokkur Íslandsmet.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert