EM lágmark og fimm met í sundi

Anton Sveinn McKee í Laugardalnum í gær.
Anton Sveinn McKee í Laugardalnum í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sundkeppni Reykjavíkurleikanna hófst í Laugardalslaug á föstudaginn og lýkur síðdegis í dag.

Í gær náði Jóhanna Elín Guðmundsdóttir lágmarki á Evrópumótið í 50 m laug sem haldið verður í Búdapest í maí. Hún synti 50 m skriðsund á 26,03 en lágmarkið er 26,23. 

Birnir Freyr Hálfdánarson setti þrjú drengjamet í úrslitunum í gær. Hann bæti metin í bæði 50 m og 100 m bringusundi og þá bætti hann einnig metið í 50 m baksundi. í 50 m bringu var metið 33,61 en Birnir synti á 33,12. í 100 m bringusundi var metið 1:11,70 en Birnir kom í bakkann á 1:10,28. Í 50 m baksundi var metið 29,30 og synti Birnir á 29,28. 

Tvö mótsmet Reykjavíkurleikanna féllu einnig í gær. Anton Sveinn McKee bætti mótsmetið í 100 m bringusundi en þar sigraði hann á tímanum 1:01,18. Alexander Dale Oen heitinn átti fyrra metið sem var 1:01,38. Viktor Bromer frá Aalborg sigraði í 200 m flugsundi á tímanum 1:59,23 og bætti þar með mótsmetið sem hann átti sjálfur og var 2:00,47. 

Fimmti og síðast mótshlutinn í sundkeppni Reykjavíkurleikanna hefst klukkan 15:00 í Laugardalslaug í dag. Smellið hér til að skoða ráslista og úrslit og hér til að fylgjast með í beinni útsendingu á Youtube-rás Sundsambands Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert