Eitt íslenskt par náði að tryggja sér sæti í úrslitum badmintonkeppni Reykjavíkurleikanna, RSL Iceland International en það voru þeir Kári Gunnarson og Davíð Bjarni Björnsson í tvíliðaleik karla.
Í undanúrslitum mættu þeir dönsku pari, Rasmus Skovborg og Søren Toft, sem þeir sigruðu nokkuð örugglega, 21:16 og 21:16. Í úrslitaleiknum mæta Kári og Davíð Bjarni sterku finnsku pari, Anton Monnberg og Jesper Paul, sem fyrir fram voru taldir sterkasta par mótsins.
Tvö önnur íslensk pör spiluðu í undanúrslitunum í morgun. Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir mættu pari frá Englandi í hnífjöfnum og skemmtilegum tvenndarleik sem Englendingarnir sigruðu í oddalotu. Karolina Prus og Júlíana Karitas Jóhannsdóttir mættu einnig ensku pari í tvíliðaleik kvenna og þurftu að játa sig sigraðar í tveimur lotum.
Á tournamentsoftware.com má sjá yfirlit yfir leiki dagsins í TBR-húsinu. Sýnt verður beint frá úrslitunum sem hefjast klukkan 15:30 á Youtube-rás Badmintonsambands Íslands.