Agnar sigraði þriðja árið í röð

Brekkusprettskeppni Reykjavíkurleikanna fór fram á Skólavörðustíg í kvöld. Í karlaflokki sigraði Agnar Örn Sigurðarson en þetta er þriðja árið í röð sem hann hampar brekkusprettstitli Reykjavíkurleikanna.

Í úrslitaviðureigninni mætti hann Guðmundi Sveinssyni og sigraði nokkuð örugglega. Eyjólfur Guðgeirsson tók bronsið eftir harða baráttu við Ingvar Ómarsson.

Á meðfylgjandi myndskeiði sem Albert Jakobsson tók má sjá nokkrar klippur frá keppni í karlaflokki og stemningunni almennt á Skólavörðustígnum í kvöld.

Nánari úrslit má finna hér.

Verðlaunahafar í brekkusprettskeppni í karlaflokki. Frá vinstri Guðmundur (2.sæti), Agnar …
Verðlaunahafar í brekkusprettskeppni í karlaflokki. Frá vinstri Guðmundur (2.sæti), Agnar (1.sæti), Eyjólfur (3.sæti). Ragnar F. Valsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert