Tveir með fullkominn leik

Maria Rodriguez er með forystu í undankeppninni í keilu á …
Maria Rodriguez er með forystu í undankeppninni í keilu á Reykjavíkurleikunum, annan daginn í röð. Jóhann Ágúst Jóhannsson

Tveir riðlar voru spilaðir í undankeppninni í keilu á Reykjavíkurleikunum í dag. Maria Rodriguez frá Kólumbíu er enn með forystu í keppninni en fast á hæla hennar fylgja stöllur hennar úr bandarísku atvinnumannadeildinni Daria Pajak frá Póllandi og Danielle McEwan frá Bandaríkjunum. Arnar Davíð Jónsson úr KFR, sigurvegari Evrópumótaraðarinnar 2019, er síðan í 4. sæti. Efst íslenskra kvenna er Dagný Edda Þórisdóttir úr KFR í 21. sæti. 

Jón Ingi Ragnarsson úr KFR og Andrés Páll Júlíusson ÍR spiluðu báðir fullkominn leik í dag eða 300 pinna. Þetta voru fyrstu fullkomnu leikirnir sem náðst hafa á mótinu en ansi margir keilarar hafa verið hársbreidd frá fullkomnum leik.

Síðasti riðillinn í undankeppninni fer fram í fyrramálið laugardaginn 1. febrúar klukkan 9 í Keiluhöllinni í Egilshöll. Að honum loknum kemur í ljós hvaða 24 keilararnir tryggja sér sæti beint í úrslitakeppnina sem hefst á sunnudaginn klukkan 9. 

Stöðuna í undankeppninni og aðrar nánari upplýsingar um mótið má finna á rigbowling.is. Streymt er frá öllum riðlum og úrslitaviðureignum á Facebook.

Daria Pajak frá Póllandi er í 2.sæti í undankeppninni í …
Daria Pajak frá Póllandi er í 2.sæti í undankeppninni í keilu á Reykjavíkurleikunum að loknum tveimur dögum af þremur. Jóhann Ágúst Jóhannsson
Danielle McEwan frá Bandaríkjunum er í 3.sæti í undankeppninni í …
Danielle McEwan frá Bandaríkjunum er í 3.sæti í undankeppninni í keilu á Reykjavíkurleikunum að loknum tveimur dögum af þremur. Jóhann Ágúst Jóhannsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert