Andri vann Hafþór í úrslitaleiknum

Andri Freyr Jónsson vann keilukeppnina á Reykjavíkurleikunum.
Andri Freyr Jónsson vann keilukeppnina á Reykjavíkurleikunum.

Andri Freyr Jónsson úr Keilufélagi Reykjavíkur vann keilukeppnina á Reykjavíkurleikunum þegar hann sigraði Hafþór Harðarson úr ÍR í lokaviðureigninni í gærkvöld.

Keppnin var æsispennandi allt fram á síðasta kast Andri. Fór leikurinn 225 gegn 214. Í úrslitum áttust við auk þeirra Andri og Hafþórs þeir Adam Pawel úr ÍR sem varð í 3. sæti og Jón Ingi Ragnarsson úr Keilufélagi Reykjavíkur sem varð í því fjórða.

Bestum árangri kvenna á mótinu náði Linda Hrönn Magnúsdóttir úr ÍR en hún varð í 12. sæti í forkeppninni og komst inn í 16 manna úrslitin í dag. Það gerði einnig Marika K.E. Lönnroth en hún varð í 15. sæti forkeppninnar og endar því skv. mótsreglum sætinu neðar en Linda.

Þetta var í 13. sinn sem keppt er í keilu á Reykjavíkurleikunum. Þrátt fyrir samkomutakmarkanir og það að ógerningur var að fá erlenda keppendur til landsins var það samt sameiginleg ákvörðun mótshluta Reykjavíkurleikanna undir forystu ÍBR að halda mót enda hafa margar íþróttagreinar ekki náð að halda keppnir undanfarna mánuði.

Sjá má úrslit mótsins hérwww.kli.is/rig

Andri Freyr Jónsson sigurvegari í keilukeppninni á Reykjavíkurleikunum.
Andri Freyr Jónsson sigurvegari í keilukeppninni á Reykjavíkurleikunum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert