Frjálsíþróttir og sund á lokadegi Reykjavíkurleikanna

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir ætlar sér stóra hluti.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir ætlar sér stóra hluti. mbl.is/Árni Sæberg

Búist er við spennandi keppni á frjálsíþróttamóti Reykjavíkurleikanna í Laugardalshöllinni í dag og vonandi að fleiri lágmörk náist á sundmótinu í Laugardalslauginni.

Sund 

Þriðji dagur sundmótsins fer fram í dag, en góður árangur hefur náðst síðustu daga með bætingum og lágmörkum íþróttafólksins. Mótið hefst klukkan 9:00 með undanrásum og hefjast svo úrslitin klukkan 17:00 

Hér er að fylgjast með streymi frá mótinu og live úrslitum hér. 

Frjálsíþróttir

Frjálsíþróttakeppnin hefst í dag klukkan 12.00, en verður svo sýnd á RÚV kl. 16.00. Mikil skipulagning hefur farið í að setja mótið upp, þar sem mótinu er skipt í þrjá mótshluta og svæðinu skipt í fjögur sóttvarnahólf.

Spennandi verður að sjá hvort Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Kolbeinn Höður Gunnarsson ná lágmarkinu á Evrópumeistaramótið í 60 m hlaupi, eða hvort Guðbjörg Jóna nái Íslandsmetinu í 200 m hlaupi. Guðni Valur Guðnason keppir í kúluvarpi en hann stefnir á Ólympíuleikana í annað sinn í kringlukasti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert