Guðbjörg og Kolbeinn unnu tvöfalt

Guðbjörg Jóna kemnur fyrst í mark í 200 metra hlaupi …
Guðbjörg Jóna kemnur fyrst í mark í 200 metra hlaupi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Kolbeinn Höður Gunnarsson fögnuðu sigri í 200 metra hlaupum á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöll í dag. Þau voru hins vegar nokkuð frá sínum besta árangri. 

Guðbjörg Jóna hljóp á 24,42 sekúndum, sem er tæpri hálfri sekúndu frá hennar besta tíma. Þórdís Eva Steinsdóttir veitti henni góða keppni og varð önnur á 24,66 sekúndum. Melkorka Rán Hafliðadóttir kom þriðja í mark á 25,54 sekúndum. 

Kolbeinn Höður hljóp á 21,69 sekúndum en hann á best 21,21 sekúndu. Ívar Kristinn Jasonarson kom annar á 21,95 sekúndum og Dagur Fannar Einarsson varð þriðji á 22,73 sekúndum. 

Guðbjörg og Kolbeinn hafa verið fremstu röð í spretthlaupi á Íslandi síðustu ár og fögnuðu þau einnig sigri í 60 metra hlaupi fyrr í dag. 

Kolbeinn Höður Gunnarsson fagnar sigri í dag.
Kolbeinn Höður Gunnarsson fagnar sigri í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert