Þrjár af fjórum á persónulegu meti

Iðunn Björg Arnaldsdóttir kemur fyrst í mark í dag á …
Iðunn Björg Arnaldsdóttir kemur fyrst í mark í dag á nýju persónulegu meti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Iðunn Björg Arnaldsdóttir kom fyrst í mark í 800 metra hlaupi á Reykjavíkurleikunum í Laugardalshöllinni í dag. Hún hljóp á 2:17,83 mínútum sem er hennar besti árangur. 

Elín Sóley Sigurbjörnsdóttir varð önnur á 2:18,87 mínútum sem er bæting á hennar besta árangri og Guðný Lára Bjarnadóttir varð þriðja á 2:23,18 sem er sömuleiðis persónulegt met, en Guðný er á 17. aldursári. 

Sara Mjöll Smáradóttir varð fjórða á 2:24,38 mínútum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert