Klifur og keila á Reykjavíkurleikunum í dag

Frá undanrásunum í klifri á Reykjavíkurleikunum.
Frá undanrásunum í klifri á Reykjavíkurleikunum. Ljósmynd/Sigrún Hrólfsdóttir

Úrslitakeppnin í klifri á Reykjavíkurleikunum fer fram í kvöld í Klifurhúsinu þegar 10 klifrarar keppa um titilinn.  

Undankeppnin fór fram í vikunni og þeir sem keppa til úrslita eru:

Konur:

1. Lukka Mörk Sigurðardóttir
2. Inga Arhus
3. Ásthildur Elva Þórisdóttir
4. Katarína Eik Sigurjónsdóttir
5. Brimrúm Eir Óðinsdóttir

Karlar:

1. Valdimar Björnsson
2. Birgir Óli Snorrason
3. Birgir Berg Birgisson
4. Stefán Þór Sigurðsson
5. Egill Örn Sigþórsson

Sýnt verður beint frá úrslitunum kl. 19:30 á RIG.is og RÚV2

Keila á Reykjavíkurleikunum í dag

Í dag heldur riðlakeppnin áfram í keilu á Reykjavíkurleikunum í Egilshöll. Fyrri riðill dagsins verður kl. 15 og sá síðari kl. 19 en leiknir eru 6 leikir í hverjum riðli. Margir erlendir keppendur hafa komið til landsins og flestir þeirra hafið keppni.

Þeirra á meðal eru atvinnukonurnar Verity Crawley frá Englandi og Diana Zavjalova frá Lettlandi sem keppa á bandarísku atvinnumótaröðinni en þær eru eins og er í efstu tveimur sætum forkeppninnar.

Streymt verður frá öllu mótinu fram að sjónvarpsúrslitum á RIG.IS.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert