ATH.: Upplýsingarnar sem hér koma fram eru úreltar. Skoðið frekar Framúrskarandi fyrirtæki 2021.

195 Hornsteinar arkitektar ehf

Stærðarflokkur Meðalstórt
Röð innan flokks 36
Landshluti Höfuðborgarsvæði
Atvinnugrein Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi
Starfsemi Starfsemi verkfræðinga og skyld tæknileg ráðgjöf
Framkvæmdastjóri Ögmundur Skarphéðinsson
Fyrri ár á listanum Engin
Framúrskarandi 2019

Hvernig gengur reksturinn?

Eignir 261.520
Skuldir 105.521
Eigið fé 155.999
Eiginfjárhlutfall 59,7%
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna

Eigendur og eignarhald

Þekktir hluthafar 3
Endanlegir eigendur 3
Eignarhlutur í öðrum félögum 1
Endanleg eign í öðrum félögum 0

Lánshæfismat félaga í sömu grein

Meðallánshæfi félaga í atvinnugreininni Starfsemi verkfræðinga

pila

Tiltölulega áhættulítil

Meira um fyrirtækið hjá CreditInfo

Auðga mannlegt umhverfi

Ögmundur Skarphéðinsson kom heim að loknu námi árið 1993 og …
Ögmundur Skarphéðinsson kom heim að loknu námi árið 1993 og hefur teiknað margar þekktar byggingar frá þeim tíma. Kristinn Magnússon

Arkitektastofan Hornsteinar starfar í hörðu samkeppnisumhverfi, að sögn framkvæmdastjórans Ögmundar Skarphéðinssonar arkitekts.

„Það má á stundum líkja starfsumhverfi okkar við lögmál frumskógarins fremur en heilbrigðan markað,“ segir Ögmundur.

Fyrirtækið hefur haldið vel á spöðunum í rekstrinum í gegnum árin, enda er það í hópi framúrskarandi fyrirtækja á lista Creditinfo í ár.

„Já, sígandi lukka er best. Það eru 25 ár síðan stofan hóf störf í því formi sem hún er í í dag, en ég kom heim árið 1993 eftir sex ára dvöl í Bretlandi og stofnaði teiknistofu sem síðan varð að Hornsteinum.“

Skugginn er meðal þeirra verkefna sem Hornsteinar hafa teiknað.
Skugginn er meðal þeirra verkefna sem Hornsteinar hafa teiknað. Ómar Óskarsson

Ögmundur segir að starfsumhverfi stofunnar sé mótað bæði af opinberum aðilum og einkaaðilum, og það sé alltaf áskorun að reka fyrirtæki í hörðu samkeppnisumhverfi.

„Öll stærstu verkefni okkar hjá Hornsteinum eru komin til í gegnum hönnunarsamkeppnir. Þetta eru ýmist opnar eða lokaðar samkeppnir, og við höfum tekið þátt í fjölda þeirra í gegnum tíðina en einnig hefðbundnum útboðum. Oft hefur okkur vegnað prýðilega, og við höfum náð ákveðnum tökum á að halda sjó í svona umhverfi.“

Fjárfesting í arkitektúr skynsamleg

Auk þess að ná að reka stofuna réttu megin við núllið þurfa þeir sem starfa í bransanum, að sögn Ögmundar, að vera duglegir að leiða fólki fyrir sjónir að fjárfesting í arkitektúr sé góð og skynsamleg. „Maður þarf að láta fólk skynja að þetta snýst ekki bara um útlit og yfirbragð bygginga heldur um fólk og líðan þess, og hvernig við auðgum þetta mannlega umhverfi.“

Hvernig hefur gengið að koma fólki í skilning um þetta?

„Það má segja að hönnunarbransanum hafi tekist að ná ákveðnum árangri í þessum efnum. Hönnunargreinum hefur almennt séð vaxið ásmegin, og þær styrkja hver aðra. Hönnun er orðin miklu sýnilegri og stærri hluti en áður var, og umræðan er miklu meiri en þegar við hófum leik á þessum markaði. En þessu verkefni lýkur aldrei, og við verðum að halda vöku okkar.“

En hvað með það sem snýr að helstu straumum og stefnum í faginu?

„Sem betur fer koma sífellt nýjar kynslóðir í fagið, og við höfum verið einstaklega heppin með teymi okkar hér hjá Hornsteinum í gegnum árin. Þótt starfsmannavelta sé lítil hafa nýjar kynslóðir sýnt því áhuga og raunar sótt fast að slást í hópinn. Það skiptir gríðarlegu máli.“

Spurður hvort aðsókn í nám í arkitektúr sé góð segir Ögmundur að það gangi í bylgjum.

„Aðaláskorunin er að fá þá sem leggja út í þetta fag, sem er erfitt og strangt, til að skila sér heim og út á starfsvettvanginn. Mörgum finnst kannski spennandi að verða arkitekt, en eftir að hafa gengið í gegnum hreinsunareldinn heltast of margir úr lestinni.“

Meiri tími í hönnunina

Hornsteinar hafa nýtt sér til fullnustu þau tækifæri sem innreið tölvutækninnar leiddi af sér, og hafa viðskiptavinir notið góðs af því, að sögn Ögmundar.

„Þegar menn fóru í tölvustudda hönnun fyrir ríflega 20 árum fengum við miklu meiri tíma til að sinna sjálfri hönnuninni. Áður fór kannski 25% tímans í hönnunina og 75% í að koma þeirri hönnun frá sér, en möguleikar sköpuðust á að snúa þessu hlutfalli við með tilkomu tækninnar.“

Ögmundur segir að Háskólatorg hafi sannað gildi sitt og að …
Ögmundur segir að Háskólatorg hafi sannað gildi sitt og að það verkefni sé honum hugstætt. Ómar Óskarsson

Hjá Hornsteinum starfa í dag 16 starfsmenn með ólíkan menntabakgrunn. Bæði er þar fólk við störf sem lært hefur hér á landi og erlendis.

„Þetta er góð blanda, og vinnustaðurinn er skemmtilegri fyrir vikið. Svo höfum við þá sérstöðu að landslagsarkitektar og arkitektar vinna saman, og við höfum tilhneigingu til að líta á okkur sem eina heild. Það er ekki nóg að byggja bara húsið eða önnur mannvirki, heldur þarf að sjá hvernig það prjónast við umhverfið.“

Verkefni stofunnar hafa alla tíð verið mjög fjölbreytt og snúa ekki einvörðungu að nýjum mannvirkjum. Aðspurður segir Ögmundur að endurgerð 20. aldar bygginga sé sérstakt áhugamál hjá stofunni. Meðal annars hafi stofan komið að endurgerð gamla Safnahússins á Hverfisgötu á sínum tíma.

„Svo vorum við leiðandi í stærsta húsverndunarverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi þegar mannvirki Sogsstöðva voru endurnýjuð kringum síðustu aldamót.“

En er eitthvert verkefni Hornsteina í uppáhaldi hjá Ögmundi?

„Já og nei. Það er hins vegar alltaf gaman þegar verkefni skipta virkilega sköpum. Ég hef oft sagt að ég sé afskaplega sáttur við hvernig okkur tókst til við hönnun Háskólatorgsins, en það var samkeppnisverkefni sem við tókum þátt í í samvinnu við góða kollega okkar. Nú er komin mjög góð reynsla á það. Margir spáðu ekki vel fyrir því í upphafi en nú spyrja menn sig að því hvernig í ósköpunum hafi verið hægt að reka skólann án þessarar byggingar. Þetta verkefni færir manni stöðugt ánægju, enda hefur því verið afar vel tekið.“

Hornsteinar eru í lykilhlutverki við hönnun nýs Landspítala við Hringbraut.
Hornsteinar eru í lykilhlutverki við hönnun nýs Landspítala við Hringbraut. Hallur Már

Flóknasta verkefni samtímans

Hornsteinar takast nú á við eitt flóknasta hönnunarverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi, að sögn Ögmundar, hönnun nýs Landspítala. „Það er mikil áskorun og tekur mikið af athygli okkar. Við erum þar hluti af Corpus-hönnunarteyminu, þar sem bæði innlendir og erlendir arkitektar og verkfræðingar koma saman. Þetta er feykilega krefjandi en líka bæði spennandi og skemmtilegt. Það er mikil áskorun að gera svona stóra byggingu og reyna að fella hana inn í nærumhverfi sitt þannig að hún verði góður granni. En umfram allt þarf hún að vera góður vinnustaður og skjól fyrir þá sem þangað leita, eins konar græðandi umhverfi“.

mbl.is

Fleiri greinar og viðtöl

Samstarfsaðilar