ATH.: Upplýsingarnar sem hér koma fram eru úreltar. Skoðið frekar Framúrskarandi fyrirtæki 2021.

286 Epal hf.

Stærðarflokkur Meðalstórt
Röð innan flokks 91
Landshluti Höfuðborgarsvæði
Atvinnugrein Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum
Starfsemi Smásala á húsgögnum í sérverslunum
Framkvæmdastjóri Kjartan Páll Eyjólfsson
Fyrri ár á listanum 2017–2018
Framúrskarandi 2019

Hvernig gengur reksturinn?

Eignir 600.483
Skuldir 201.614
Eigið fé 398.869
Eiginfjárhlutfall 66,4%
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna

Eigendur og eignarhald

Þekktir hluthafar 6
Endanlegir eigendur 5
Eignarhlutur í öðrum félögum 2
Endanleg eign í öðrum félögum 0

Lánshæfismat félaga í sömu grein

Meðallánshæfi félaga í atvinnugreininni Smásala á húsgögnum, ljósabúnaði og öðrum ótöldum heimilisbúnaði í sérverslunum

pila

Miðlungi áhættumikil

Meira um fyrirtækið hjá CreditInfo

Ástríða fyrir íslenskri hönnun

Kjartan Páll Eyjólfsson er framkvæmdastjóri Epal.
Kjartan Páll Eyjólfsson er framkvæmdastjóri Epal. Árni Sæberg

Fjölskyldufyrirtækið Epal, sem Eyjólfur Pálsson stofnaði fyrir 44 árum, hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2017. Epal er þekktast hér á landi fyrir sölu á vönduðum hönnunarhúsgögnum sem mestmegnis koma frá Skandinavíu, einna helst Danmörku, en þar nam Eyjólfur innanhúsarkitektúr eftir að hafa lært húsgagnasmíði hér á landi. Sonur Eyjólfs, Kjartan Páll, er tekinn við stjórnartaumum fyrirtækisins í dag og hefur hann verið framkvæmdastjóri frá árinu 2008.

Epal hefur verið rekið af sömu fjölskyldu á sömu kennitölu í 44 ár. Fyrirtækið hefur sýn stofnandans að leiðarljósi í rekstrinum enn þann dag í dag um að koma íslenskri hönnun á framfæri en hefur þurft að takast á við breyttar aðstæður á undanförnum árum. Í dag er Epal, að sögn Kjartans, verslun sem býður upp á fjölbreytta flóru húsgagna á breiðu verðbili auk alls þess sem viðkemur rýmum í húsnæði fólks.

Fjármagn runnið inn á við


Kjartan segir vottun Creditinfo vera gæðastimpil og viðurkenningu á að þau hjá Epal séu að gera eitthvað rétt. „Það er ekkert nema jákvætt við þetta. Þetta er jákvæður stimpill en við teljum okkur þó hafa verið fyrirmyndarfyrirtæki alla tíð,“ segir Kjartan og brosir.

Að sögn Kjartans hefur Epal gengið í gegnum ýmsar áskoranir á þeim 44 árum sem liðin eru frá stofnun fyrirtækisins. „Við höfum þroskast mikið og lært. Okkar fjármagn hefur runnið inn á við og við höfum ekki verið að belgja okkur út eða keypt aðra aðila eða fyrirtæki. Við höfum frekar styrkt okkar stoðir. Við eigum okkar húsnæði sjálf og þetta er allt undir okkur komið. Síðasta ár gekk mjög vel og við teljum okkur vera á réttri leið. Auðvitað þarf alltaf að vinna í hlutunum og það eru ýmsar utanaðkomandi aðstæður sem maður hefur ekki stjórn á; hækkandi kostnaður og ýmislegt í umhverfinu sem vinna verður með,“ segir Kjartan en fyrirtækið rekur fjórar verslanir.

Flaggskipsverslunin er í Skeifunni og þar er hátt til lofts …
Flaggskipsverslunin er í Skeifunni og þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Árni Sæberg

Flaggskipsverslunin er í Skeifunni í flenni-stóru rými sem telur um 2.000 fermetra.

„Við höfum verið að byggja okkur upp og stækkað rýmið og plássið til að sýna og selja vandaða gæðavöru,“ segir Kjartan.

Auknar kröfur

Að sögn Kjartans er húsgagnamarkaðurinn krefjandi. Viðskiptavinir gera auknar kröfur til söluaðila og þar spilar internetið stóra rullu.

„Það er meiri samkeppni við netverslanir en við teljum okkur vera með það frambærilegar vörur og sanngjarnt verð að við eigum fullt erindi á markaðinn. En það er ekkert leyndarmál að hér er meiri samkeppni en áður. Í gegnum tíðina hefur verið sagt að Epal sé dýr verslun. Við erum það ekki lengur. Síðustu árin höfum við verið mjög sambærileg öðrum og við reynum að verðleggja okkur í samræmi við það sem gerist úti í heimi,“ segir Kjartan en nefnir þó að auðvitað þurfi að flytja vörurnar til Íslands. Það sé kostnaðarsamt.

„Aðgengið að vörum er miklu meira en það var áður. Fólk sættir sig ekkert við að kaupa vöru hérna heima sem er 20-30% dýrari. Það er einfalt að fletta upp hvað hlutir kosta t.d. í Illum Bolighus. Þetta á að vera nokkurn veginn á pari. En það er alltaf dýrt að flytja vörur til Íslands og það kostar sitt. Menn eru ekki alltaf að bera saman epli og epli,“ segir Kjartan og viðurkennir að þessi þróun hafi gert reksturinn meira krefjandi.

Kjartan segir að Epal selji vissulega dýr merki. Fyrirtækið selur húsgögn frá klassískum dönskum húsgagnaframleiðendum, Carl Hansen, Fritz Hansen og Louis Poulsen, en hefur í seinni tíð boðið upp á vörur frá Hay og Muuto. „Sem eru ódýr merki. Við höfum alla flóruna. En aftur á móti eru þetta allt vandaðar gæða- og hönnunarvörur. Þetta fellur allt undir okkar hatt og við getum þjónað öllum – sama hvort fólk er að kaupa dýran sófa, millidýran eða ódýran,“ segir Kjartan.

Epal hefur alla tíð lagt áherslu á hágæða hönnunarvöru sem …
Epal hefur alla tíð lagt áherslu á hágæða hönnunarvöru sem stenst tímans tönn. Árni Sæberg


Vendipunktur árið 2008

Kjartan segir ákveðna áherslubreytingu hafa átt sér stað hjá fyrirtækinu eftir fjármálahrunið árið 2008. Þá hafi fyrirtækið þurft að leita leiða til þess að glæða söluna en í dag nemur sala á gjafavöru um 30% af heildarsölu fyrirtækisins.

„Vendipunkturinn var árið 2008. Þá fór fókusinn meira í gjafavöru sem var ekki til staðar hjá okkur áður. Fjölbreytnin varð meiri. Það sýndi sig líka í byrjun kreppunnar að fólk hljóp ekki út í búð að kaupa sófa. En þú ert alltaf að kaupa smáhluti, afmælisgjafir, brúðargjafir, innflutningsgjafir og annað. Þannig fengum við fólk inn í búðina sem hugsanlega sá svo eitthvað sem það keypti síðar meir,“ segir Kjartan.

Hjálpa upprennandi hönnuðum

Í gegnum tíðina hefur Epal lagt mikla áherslu á að koma íslenskri hönnun á framfæri. Hvort sem varan er framleidd hér á landi eða erlendis. Sú viðleitni á rætur að rekja til Eyjólfs, stofnanda Epals og föður Kjartans. „Þetta er hans ástríða: íslensk hönnun og að koma henni á framfæri,“ segir Kjartan en fuglar hannaðir af Sigurjóni Pálssyni sem eru bæði framleiddir af Epal og Normann Copenhagen hafa náð hvað mestri útbreiðslu.

„Við erum að framleiða ákveðna línu, vörur sem Sigurjón Pálsson hefur hannað fyrir okkur, en í grunninn erum við verslun, söluaðili og heildsali. En við erum að reyna fyrir okkur í útflutningi. Þetta er ekki mikið magn en við erum að reyna,“ segir Kjartan sem selur þessar vörur m.a. til Færeyja og Danmerkur.

Fyrirtækið hefur í gegnum tíðina reynt að hjálpa upprennandi hönnuðum.

„Við fáum margt fólk til okkar sem vill fá að selja hjá okkur eða leitar ráða hjá okkur varðandi ýmis praktísk atriði. Hönnuðir eru ekkert endilega lærðir í öllu því sem við kemur að koma vöru á markað. T.d. mál sem varða umbúðir eða hvort það þurfi hreinlega strikamerki á vöruna. Við búum einnig yfir góðu tengslaneti og stundum passa ákveðnar vörur ekki í okkar verslun. Þá reynum við að benda fólki í þær áttir þar sem við teljum að þetta myndi ganga,“ segir Kjartan.

Epal tekur virkan þátt í Hönnunarmars sem er framtak sem rímar vel við áherslur fyrirtækisins.

„Við erum einn af aðalþátttakendunum í Hönnunarmars. Við eyðum miklum tíma í það framtak og gerum það af miklum þrótti. Það er góður gluggi fyrir upprennandi hönnuði til þess að koma vörum sínum á framfæri. Þangað sækja margir erlendir aðilar,“ segir Kjartan.

Gætu þolað sér verslun

Vörur frá danska húsgagna- og hönnunarfyrirtækinu Hay hafa notið vinsælda í Skandinavíu á undanförnum árum og rekur fyrirtækið nokkrar verslanir í Kaupmannahafnarborg. Aðspurður hvort það komi til greina að taka eitthvað af þeim vörumerkjum út fyrir sviga hér á landi í stað þess að selja þær í verslunum Epal segir Kjartan að það hafi komið til tals.
„Við höfum hugsað og rætt þessa hluti. Það eru ákveðin vörumerki sem gætu þolað það. Ég ætla ekki að útiloka neitt og Hay er eitt af merkjunum sem gætu réttlætt það. En svo er það spurning með umfang og annað og hvað markaðurinn þolir,“ segir Kjartan.

mbl.is

Fleiri greinar og viðtöl

Samstarfsaðilar