ATH.: Upplýsingarnar sem hér koma fram eru úreltar. Skoðið frekar Framúrskarandi fyrirtæki 2021.

391 Héðinn Schindler lyftur ehf.

Stærðarflokkur Meðalstórt
Röð innan flokks 158
Landshluti Höfuðborgarsvæði
Atvinnugrein Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð
Starfsemi Önnur uppsetning í mannvirki
Framkvæmdastjóri Eyjólfur Ingimarsson
Fyrri ár á listanum 2010–2019
Ávallt framúrskarandi Framúrskarandi 2020

Hvernig gengur reksturinn?

Eignir 281.756
Skuldir 155.493
Eigið fé 126.263
Eiginfjárhlutfall 44,8%
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna

Eigendur og eignarhald

Þekktir hluthafar 5
Endanlegir eigendur 4
Eignarhlutur í öðrum félögum 1
Endanleg eign í öðrum félögum 1

Lánshæfismat félaga í sömu grein

Meðallánshæfi félaga í atvinnugreininni Raflagnir, pípulagnir og önnur starfsemi við uppsetningu í byggingariðnaði

pila

Tiltölulega áhættulítil

Meira um fyrirtækið hjá CreditInfo

Hafa forðast það að taka lán

„Við byrjuðum algjörlega skuldlausir, gátum leigt húsnæði, keypt skrifborð og allt sem þurfti. Þannig að við höfum ekkert verið að taka lán,“ segir Eyjólfur Ingimarsson, framkvæmdastjóri hjá Héðni Schindler-lyftum, um reksturinn. 25 milljónir hafi verið í hlutafé við stofnun árið 1989 sem var heilmikil upphæð í þá daga. Þessi hugsunarháttur hafi verið lykillinn að framúrskarandi rekstri fyrirtækisins í gegnum tíðina.

Reksturinn byggist alfarið á sölu og þjónustu á Schindler-lyftum og fyrirtækið er að meirihluta í svissneskri eigu en þaðan koma allar áherslur í rekstrinum, hvort sem um er að ræða markaðsmál eða ráðstöfun fjármuna. Starfsmenn eru nú 27 talsins en Eyjólfur á jafnvel von á að þeim muni fjölga á næstunni enda sé töluvert líf í byggingariðnaði. 

Í sam­starfi við Cred­it­in­fo sýn­ir mbl.is nú heim­sókn­ir í nokk­ur Framúrsk­ar­andi fyr­ir­tæki og nú þegar hafa heim­sókn­ir í KælitækniFriðheimaStoð, Garðheima, Vörð og Völku verið birt­ar.

mbl.is

Fleiri greinar og viðtöl

Samstarfsaðilar