ATH.: Upplýsingarnar sem hér koma fram eru úreltar. Skoðið frekar Framúrskarandi fyrirtæki 2021.

457 Stoð ehf., Stoðtækjasmíði

Stærðarflokkur Meðalstórt
Röð innan flokks 207
Landshluti Höfuðborgarsvæði
Atvinnugrein Framleiðsla
Starfsemi Framleiðsla á tækjum og vörum til lækninga og tannlækninga
Framkvæmdastjóri Ólafía Ása Jóhannesdóttir
Fyrri ár á listanum 2018–2019
Framúrskarandi 2020

Hvernig gengur reksturinn?

Eignir 538.712
Skuldir 222.592
Eigið fé 316.120
Eiginfjárhlutfall 58,7%
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna

Eigendur og eignarhald

Þekktir hluthafar 1
Endanlegir eigendur 8
Eignarhlutur í öðrum félögum 0
Endanleg eign í öðrum félögum 0

Lánshæfismat félaga í sömu grein

Meðallánshæfi félaga í atvinnugreininni Framleiðsla, ót.a.

pila

Tiltölulega áhættulítil

Meira um fyrirtækið hjá CreditInfo

Björt framtíð í stoðtækjageiranum

Íslenska þjóðin eldist hratt og á sama tíma eykst þörfin fyrir stoð- og hjálpartæki ýmiss konar sem auðveldað geta fólki daglegt líf. Það fyrirtæki sem er hvað atkvæðamest í þessum geira er Stoð í Trönuhrauni í Hafnarfirði, en félagið veitir þessum hópi og öðrum, ótrúlega fjölbreytta þjónustu.

Eins og Ása Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri útskýrir, þá er Stoð rótgróið fyrirtæki, upphaflega stofnað af stoðtækjafræðingum árið 1982. Ása, sem tók við stjórnartaumum í félaginu í júní sl. af Elíasi Gunnarssyni, segir að viðskiptavinahópur Stoðar sé breiður. „Þetta er allt frá fólki sem er á fullu í sínum íþróttum, útivist og annarri heilsueflingu yfir í fólk sem þarf ráðgjöf við að koma sér af stað í hreyfingu, vill fá sér réttu skóna, þarf innlegg eða hlífar og slíkt. Okkar skjólstæðingar eru svo líka einstaklingar sem sökum fötlunar eða hindrunar þurfa á stoð- og hjálpartækjum að halda. Við erum þjónustufyrirtæki á breiðu sviði heilbrigðisþjónustu.“

Vinna með Sjúkratryggingum Íslands

Ása segir að Stoð vinni náið með Sjúkratryggingum Íslands, sem styrkja kaup á stoð- og hjálpartækjum fyrir marga af skjólstæðingum fyrirtækisins.

Stoð- og hjálpartæki eru margvísleg eins og Ása útskýrir. Þar er t.d. um að ræða spelkur, hjólastóla, göngugrindur og baðhjálpartæki. „Stoð er líka framleiðslufyrirtæki þar sem við sérsmíðum til dæmis spelkur, skó, gervilimi og sérmót fyrir fólk sem bundið er í hjólastól.“

Stoð hefur verið í eigu heilbrigðisfyrirtækisins Veritas síðan árið 2018. Undir hatti Veritas eru einnig lyfjaheildsalan Vistor, dreifinga- og innflutningsfyrirtækið Distica, sölu- og markaðsfyrirtækið Artasan og lækninga- og rannsóknarvörufyrirtækið MEDOR. Hjá því síðastnefnda starfaði Ása einmitt áður en hún réð sig til starfa hjá Stoð.

Ása segir að það hafi margvíslega kosti í för með sér að vera hluti af Veritas-samsteypunni, en með því nái Stoð að einbeita sér enn betur að því sem mestu máli skiptir í rekstrinum.

Ása segir að Stoð eigi sér bjarta framtíð. Í fyrirtækinu búi mikil þekking og innan veggja þess starfi ótal sérfræðingar, þar á meðal sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfi, stoðtækjafræðingar og stoðtækjasmiðir. „Á þessu viljum við byggja og horfa til framtíðar. Þar sem öldruðum er að fjölga viljum við styðja þann hóp betur, þannig að fólk geti komið hingað og fengið ekki bara hjólastóla, heldur einnig aðrar vörur og þjónustu, eins og til dæmis sjúkrarúm fyrir heimili, og vörur eins og þvagleggi og stómapoka. Þangað erum við að fara.“

Vill bjóða heildrænni þjónustu

Með nýjum framkvæmdastjóra koma nýjar áherslur. Hugmyndir Ásu miða að því að bjóða upp á heildrænni þjónustu í fyrirtækinu en verið hefur. „Við viljum horfa á heilbrigði og heilbrigðislausnir í sinni víðustu mynd. Við bjóðum til dæmis upp á bæklunarskó, en það væri gaman að bjóða líka upp á þjónustu fótaaðgerðafræðinga. Þá yrðum við komin með „allt á einn stað“, og engin þörf fyrir fólk að fara annað.“

Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt á þeim tæpum 40 árum sem það hefur verið í rekstri. Fyrst um sinn voru einungis stoðtæki í boði, en síðar komu hjálpartækin til sögunnar. Í stuttu máli má lýsa muninum á stoð- og hjálpartækjum þannig að stoðtæki eru föst við líkamann, eins og gervilimir, en hjálpartæki eru það ekki. Þar má nefna hjólastóla og göngugrindur.

Eitt af því sem er mikilvægt til að stuðla að heilbrigði eru forvarnir, en þar haslaði Stoð sér völl fyrr á árinu þegar það tók yfir rekstur Flexor á Bíldshöfða. „Þar seljum við vörur eins og hlaupaskó, lífsstílsvörur ýmiss konar, æfingatæki, gönguskó og slíkt. Þá bjóðum við upp á göngugreiningu hjá sjúkraþjálfurum og íþróttafræðingum,“ segir Ása.

Vilja kynna fyrirtækið betur

Eitt af því sem verður liður í að auka tekjur fyrirtækisins er að sögn Ásu að kynna fyrirtækið betur á almennum markaði. Hún vill að almenningur viti að hjá Stoð sé hægt að fá margs konar stuðningsvörur, t.d. fyrir fólk sem hefur orðið fyrir hnjaski í útihlaupum, golfi eða leikfimi. „Það er hluti af framtíðarstefnumótuninni, að gera vörumerkið sýnilegra.“

Ása Jóhannesdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Stoðar fyrr á þessu …
Ása Jóhannesdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Stoðar fyrr á þessu ári. Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Fleiri greinar og viðtöl

Samstarfsaðilar