ATH.: Upplýsingarnar sem hér koma fram eru úreltar. Skoðið frekar Framúrskarandi fyrirtæki 2021.

205 Fönn - Þvottaþjónustan ehf.

Stærðarflokkur Stórt
Röð innan flokks 166
Landshluti Höfuðborgarsvæði
Atvinnugrein Félagasamtök og önnur þjónustustarfsemi
Starfsemi Þvottahús og efnalaugar
Framkvæmdastjóri Ari Guðmundsson
Fyrri ár á listanum Engin
Framúrskarandi 2020

Hvernig gengur reksturinn?

Eignir 2.281.177
Skuldir 1.128.688
Eigið fé 1.152.489
Eiginfjárhlutfall 50,5%
Allar fjárhæðir eru í þúsundum króna

Eigendur og eignarhald

Þekktir hluthafar 2
Endanlegir eigendur 1
Eignarhlutur í öðrum félögum 3
Endanleg eign í öðrum félögum 5

Lánshæfismat félaga í sömu grein

Meðallánshæfi félaga í atvinnugreininni Þvottahús og efnalaugar

pila

Miðlungi áhættumikil

Meira um fyrirtækið hjá CreditInfo

Enginn viðskiptavinur of lítill eða of stór

Ari Guðmundsson er framkvæmdastjóri og eigandi Fannar. Umsvif fyrirtækisins eru …
Ari Guðmundsson er framkvæmdastjóri og eigandi Fannar. Umsvif fyrirtækisins eru svipuð og þvottahúss ríkisspítalanna að sögn hans. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson

Fönn – Þvottaþjónustan er stærsta einkarekna þvottahús landsins eins og Ari Guðmundsson, framkvæmdastjóri og eigandi, útskýrir fyrir blaðamanni. Þvottahús ríkisspítalanna sem er nágranni fyrirtækisins í Árbænum er svipað að stærð. „Það var gott að eiga þvottahús ríkisspítalanna að þegar kom upp eldur árið 2014 í húsnæði okkar í Skeifunni og allt brann til kaldra kola. Þá hlupu þau undir bagga og tóku við stóru verkefnunum okkar tímabundið,“ segir Ari en þvottahús ríkisspítalanna annaðist stærstu viðskiptavini Fannar í fimm mánuði, þar til fyrirtækið náði vopnum sínum á nýjan leik.

Ari segir að allt hafi endað vel hjá Fönn eftir eldsvoðann. „Við náðum að halda áfram að sinna okkar viðskiptavinum og byrjuðum að sækja þvott strax tveimur dögum eftir brunann. Starfsfólkið dreifði sér á sjö staði og við þvoðum hingað og þangað um bæinn. Þarna sýndi sig hvað við erum með fábært fólk í vinnu sem var tilbúið að leggja allt á sig til að halda rekstrinum gangandi.“

Það er handagangur í öskjunni hjá Fönn.
Það er handagangur í öskjunni hjá Fönn. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson

Ari segir að þetta hafi verið erfitt meðan á því stóð. „Þegar allt fór í gang fimm mánuðum seinna vorum við komin í nýtt húsnæði í Kletthálsi með nýjar vélar. Við vorum vel tryggð og bankinn stóð vel við bakið á okkur. Við vorum í eigin húsnæði í Skeifunni sem við seldum síðan í framhaldi af brunanum eða árið 2017.“

Lömun ferðaþjónustu haft áhrif

Fönn er með breiðan og stóran hóp viðskiptavina en samt sem áður hefur algjör lömun íslenskrar ferðaþjónustu haft áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Mörg af þeim hótelum sem eru í viðskiptum við Fönn eru lokuð í dag. „Við erum þrátt fyrir það ágætlega sett og erum með mörg smá og stór fyrirtæki í viðskiptum. Við þurftum að fækka fólki vegna ástandsins og höfum einnig nýtt okkur úrræði stjórnvalda að hluta til.“

Síðustu ár, eða frá því að fyrirtækið hóf starfsemi í nýju húsnæði árið 2014, hefur verið góður gangur í rekstrinum hjá Fönn. „Það varð mikil aukning hjá okkur í takti við velgengnina í ferðaþjónustunni. Við vorum þarna komin með nýtt hús og ný tæki og náðum að anna aukningunni mjög vel. Sú breyting hefur líka orðið að ferðaþjónustan er orðin heilsársþjónusta en ekki bara yfir sumarið eins og var áður.“

Spurður að því hvert athafnasvæði Fannar sé, segir Ari að fyrirtækið starfi á höfuðborgarsvæðinu og fari einnig á Selfoss og vestur á Akranes en lengra fari það ekki. Engin ástæða sé til að raska viðskiptum smærri aðila úti á landsbyggðinni. Auk þess sem flutningskostnaður sé hár.

Byrjaði sem skyrtuþvottahús

Guðmundur Arason, faðir Ara, stofnaði Fönn árið 1960 í kjallaranum hjá móður sinni á Fjólugötu 19b og er því fyrirtækið 60 ára í ár. Ari segir að upprunalega hugmyndin hafi verið að reka skyrtuþvottahús. Móðursystir Guðmundar hafi unnið í þvottahúsi á þessum tíma og Guðmundur hafi séð viðskiptatækifæri í skyrtuþvottinum, enda gengu á þeim tíma allir í stífuðum skyrtum. „Það var nóg að gera í því í fyrstu en svo breyttist þetta fljótlega í eitthvað stærra og meira. Við vorum á Fjólugötunni til ársins 1966. Þá fórum við á Langholtsveginn, stækkuðum fljótlega upp á aðra hæð og síðan í kjallarann. Síðan fluttum við í Skeifuna árið 1981 og að lokum hingað í Kletthálsinn árið 2014.“

Fönn hefur alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki en Ari keypti reksturinn af föður sínum árið 2004. „Ég tók við sem framkvæmdastjóri árið 1991 og kaupin voru því eðlilegt næsta skref þegar að því kom.“

Spurður hvort það sé gaman að starfa í þvottabransanum segir Ari að hann þekki í rauninni ekkert annað, enda hafi hann verið viðloðandi þetta alla ævi. „Ég er mjög sáttur þegar ég horfi til baka og hefði í rauninni ekkert viljað hafa hlutina neitt öðruvísi. Það hefur gengið á ýmsu og það hefur bara verið gaman að takast á við þetta.“

Þvottavélarnar hjá Fönn eru engin smásmíði.
Þvottavélarnar hjá Fönn eru engin smásmíði. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson

Vöxtur Fannar hefur verið 4-5% á ári að meðaltali á undanförnum árum að sögn Ara. „Stundum eru þetta stærri stökk eins og 2015 þegar ferðaþjónustan fór á flug og síðan fer þetta eitthvað niður núna í ár vegna þessa bakslags í ferðaþjónustunni.“

Ari segir að fyrirtækið sé mjög sveigjanlegt þegar kemur að því að þjónusta viðskiptavini þess. „Við erum að þjónusta bæði einstaklinga sem koma hingað með jakkafötin og einnig mjög stóra viðskiptavini. Það er enginn viðskiptavinur of lítill eða of stór hjá okkur. Þegar við berum okkur saman við þvottahús erlendis þá sjáum við að þau eru miklu sérhæfðari en við, og starfa annaðhvort á einstaklings- eða fyrirtækjamarkaði. Þau sérhæfa sig jafnvel enn meira en það, og einbeita sér kannski bara að því að þjónusta hótel eða þvo bara vinnugalla, svo dæmi sé tekið. Á okkar litla markaði höfum við farið þá leið að þjónusta alla og teljum okkur gera það mjög vel enda hafa margir af okkar viðskiptavinum verið hjá okkur í fjöldamörg ár. Við erum einnig með mottuþjónustu þar sem við komum og skiptum um mottur hjá fyrirtækjum og húsfélögum og hefur sá hluti starfsemi okkar gengið mjög vel.“

Framleiðandinn tengist beint

En eru einhverjar markverðar nýjungar í þvottageiranum? „Almennt séð eru ekki miklar breytingar en mest hefur breyst á undanförnum árum með tölvutækninni. Til dæmis eru vélarnar okkar tengdar beint til framleiðanda vélanna, þannig að ef eitthvað er að þá geta þeir lesið af þeim og látið okkur vita hvað það er sem gera þarf við. Þá er öll sápuskömmtun inn á vélarnar orðin sjálfvirk og hægt að aðlaga skömmtun á sápu fyrir hvern viðskiptavin ef svo ber undir. Með þessari tækni er hægt að draga úr ofnotkun á þvottaefnum sem oft á sér stað.“

Starfsaldur hjá starfsfólki Fannar er nokkuð hár en margir starfsmenn hafa verið hjá fyrirtækinu í yfir 10 ár og nokkrir miklu lengur. „Sumir hafa verið hér lengur en ég eða í 30 ár. Ég vona að það séu ágætismeðmæli með vinnustaðnum.“

En hvað með fjölskylduna, er hún enn með Ara í rekstrinum? „Systkini mín hafa öll unnið hér á einhverjum tímapunkti og þau hjálpuðu mér mikið eftir brunann. Nokkur barna þeirra hafa svo unnið hér í sumarvinnu og einnig strákurinn minn en hann er í háskólanum á veturna. Maður veit ekkert hvernig það þróast og vil ég alls ekki stýra því.“

Hlustar á starfsfólk og viðskiptavini

Galdurinn við að reka þvottahús eins og Fönn með jafn farsælum hætti og Ari hefur gert, er að hans sögn að vera á staðnum og halda sér á tánum öllum stundum. „Þú þarft að hlusta á starfsfólkið og viðskiptavinina og sinna hvoru tveggja mög vel. Ef þú ert með gott fólk og því líður vel í vinnunni þá ganga hlutirnir miklu betur. Hjá okkur í Fönn gengur allt út á að viðskiptavinirnir séu ánægðir og ef það er þannig þá á reksturinn að ganga vel.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Fleiri greinar og viðtöl

Samstarfsaðilar